Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Ráðning félagsmálastjóra 2017

Mál 1702050 Fyrst á dagskrá 3. apríl 2017, síðast 4. maí 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Bæjarráð, fundur 515 liður 4

    Alls sóttu fimm aðilar um stöðu félagsmálastjóra hjá sveitarfélaginu, en staðan var auglýst þann 11. febrúar sl. Capacent ráðningar, í samráði við bæjarstjóra, hafa unnið að ráðningarferlinu. Í símasambandi við fundinn var Jóna Björg Sigurjónsdóttir ráðgjafi hjá Capacent ráðningum sem fór yfir ráðningarferlið og mat á umsækjendum. Fyrir liggur tillaga bæjarstjóra um að Helga Elísabet Guðlaugsdóttir deildarstjóri búsetuþjónustu á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar, verði ráðin félagsmálastjóri sveitarfélagsins. Tillögunni til stuðnings er vísað í faglegt mat sem unnið var af Capacent ráðningum. Þá er einnig í tillögunni vísað til mannauðsstefnu sveitarfélagsins og reglur þess um ráðningarferli hjá sveitarfélaginu.

    Lesa alla bókunina (80 orð til viðbótar)

    Bæjarráð staðfestir tillögu bæjarstjóra um að ráða Helgu Elísabetu Guðlaugsdóttur sem félagsmálastjóra.

    Eydís Ásbjörnsdóttir bókar: "Ég tel þá tvo einstaklinga sem taldir eru hæfastir í ráðningarferlinu í stöðu félagsmálastjóra Fjarðabyggðar báða hæfa í starfið eins og fram kemur í mati Capacent. Í ljósi þess hve mikill þungi er í málefnum félagsráðgjafar og barnaverndar í félagsþjónustu fjölskyldusviðs sveitarfélagsins, finnst mér miður hvað þeir þættir hafi lítið vægi í ráðningarferlinu. Sem varaformaður í barnaverndarnefnd eru þessi mál mér mjög mikilvæg og hugleikin."

  2. Bæjarstjórn, fundur 220 liður 4.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 515“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarráð, fundur 519 liður 6

    Lögð fram drög að svari til Ingu Rúnar Sigfúsdóttur vegna beiðni hennar um rökstuðning, vegna ráðningar Helgu Elísabetar Guðlaugsdóttur í starf félagsmálastjóra.

    Bæjarráð yfirfór rökstuðninginn og felur bæjarstjóra að senda hann.

  4. Bæjarstjórn, fundur 222 liður 1.6

    Fundargerðin „Bæjarráð - 519“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is