Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 176

13. maí 2017, kl. 16:00 til 17:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 522 liður 12

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr 176 frá 15.maí 2017, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 224 liður 3

    Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson,Páll Björgvin Guðmundsson, Sævar Guðjónsson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 15.maí 2017 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 730 Sléttuá - framkvæmdaleyfi, efnistaka

    Mál 1703094 Allur ferill málsins

    Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Eflu Austurlands fh. Sigurðar Baldurssonar, dagsett 26. apríl 2017, ásamt greinagerð og uppdrætti þar sem sótt er um leyfi til allt að 45.000 m3 efnistöku úr árfarvegi Sléttuár á þremur stöðum auk vinnslusvæðis á samtals 2,3 ha svæði. Fyrirhugað er að efnistaka úr námunni standi yfir í fimm ár. Á framkvæmdatíma og við verklok verða gerðar bakkavarnir í ánni. Námu- og vinnslusvæði verur fellt að umhverfinu í verklok en ekki er gert ráð fyrir að græða námusvæðin upp þar sem svæðið er allt ógróið. Umsagnir Landgræðslu Ríkisins og Fiskistofu liggja ekki fyrir. Efnistakan fellur undir lið 2.04, flokk C í 1. viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að framkvæmdin sé ekki umhverfismatsskyld og samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið þegar umsagnir liggja fyrir.

  2. 2. Garð- og malarefni

    Mál 1609089 Allur ferill málsins

    Tilfærsla á lóð undir garða- og malarefni. Óskað er eftir að taka lóðina Hjallaleira 25. í stað lóðarinnar Hjallaleira 27.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðin verði nýtt undir garða- og malarefni.

  3. 3. Kynning á tillögu að kerfisáætlun 2016-2025 og umhverfisskýrslu

    Mál 1611077 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar

  4. 4. Fólkvangur Neskaupstaðar - ástand friðlandsins 2017

    Mál 1705104 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað umhverfisstjóra um ástand göngustíga í Fólkvangi Neskaupstaðar. Sökum snjóaleysis s.l. og aukinnar umferðar um svæðið hafa stígarnir gefið undan og brýrnar illa farnar.

    Mikilvægt er að grípa til aðgerða í sumar, lagfæra stíga á mýrarsvæðum, byggja nýjar brýr og leiðbeina um gönguleiðir og loka hentugleikastígum.

    Það fékkst ekki styrkur frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til uppbyggingar samkvæmt nýju deiliskipulagi.

    Umhverfisstjóra falið að yfirfara kostnað og leggja aftur fyrir nefndina

  5. 5. 740 Naustahvammur 67-69 byggingarleyfi

    Mál 1705034 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Síldarvinnslunnar hf, dagsett 3. maí 2017 þar sem sótt er um leyfi til endurbóta á þaki fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins. Settar verða upp steinullareiningar í stað bárustáls. Teikningar eru frá Mannvit hf.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  6. 6. Stefnumótun í fiskeldismálum

    Mál 1703120 Allur ferill málsins

    Drög að stefnumótun í fiskeldi í Fjarðabyggð sem merkt er sem trúnaðarmál. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar til umsagnar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur drögin vera í samræmi við þá vinnu sem farið hefur fram í nefndinni og samþykkir drögin fyrir sitt leyti

  7. 7. 730 Hraun 1 - byggingarleyfi - 800 Súrálsgeymir, lyfta

    Mál 1705013 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Halldórs Eiríkssonar, TBL architects fh. Alcoa Fjarðaál sf, dagsett 28. apríl 2017, þar sem sótt er um leyfi til þess að setja upp utanáliggjandi lyftu á súrálsgeymi fyrirtækisins að Hrauni 1 á Reyðarfirði samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  8. 8. 750 Skólavegur 12 -óleyfisframkvæmd

    Mál 1701090 Allur ferill málsins

    Byggingarfulltrúi kynnir fyrir nefndinni feril og stöðu málsins, ásamt rökstuðningi að baki ákvörðun sem hann hefur í hyggju að taka í málinu. Ákvörðunin felur í sér að lóðarhafa að Skólavegi 12 verði veittur frestur til 20. júní n.k. til að fjarlægja það pallaefni sem í óleyfi er. Nefndin lýsir sig sammála þessari afgreiðslu og gerir hana einnig að sinni.

    Á fundi nefndarinnar þann 5. desember 2016 var bréf eiganda Skólavegar 14 frá 3. desember 2016 kynnt fyrir nefndinni og í framhaldi af því svaraði byggingarfulltrúi bréfinu í samræmi við umræðu á fundi nefndarinnar. Í fundargerð láðist að bóka um þá afgreiðslu og er hér fært til bókar að svarbréf byggingafulltrúa, dags. 19. desember 2016, var í samræmi við umræðu á fundinum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að gera lóðarhafa að Skólavegi 12 að fjarlægja pallaefni það sem er á milli skjólveggjar og girðingar á lóðarmörkum Skólavegar 12 og 14, Fáskrúðsfirði, fyrir 20. júní 2017. Byggingarfulltrúa falið að taka ákvörðun um dagsektir eða fjarlægingu efnisins á kostnað lóðarhafa, verði ekki farið eftir ákvörðuninni.

  9. 9. 730 Hafnargata 1 - byggingarleyfi - útisvæði

    Mál 1703219 Allur ferill málsins

    Lagt fram að nýju, eftir samþykkt um stækkun lóðar, bréf Árna Más Valdimarssonar fh. Sesam ehf / Sesam Brauðhús, dagsett 31. mars 2017 þar sem óskað er eftir leyfi til að setja skjólvegg við hellulagt svæði norðan húss fyrirtækisins að Hafnargötu 1 á Reyðarfirði. Jafnframt er óskað eftir leyfi til að setja upp skilti við n-a horn lóðarinnar og að Fjarðabyggð komi fyrir bekkjum með borðum og rusladalli á grassvæði norðan lóðarinnar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir uppsetningu skjólveggar og skiltis. Frágangur á grassvæði verði í samráði við sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs.

  10. 10. 755 - Deiliskipulag Söxu

    Mál 1208097 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, tillögu að deiliskipulagi Söxu við Stöðvarfjörð til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti með greinargerð dags. 1. janúar 2017 og felur meðal annar í sér að gert er ráð fyrir áningarstöðum, bílastæðum og göngustígum til að auka aðgengi og öryggi við sjávarhverinn Söxu. Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

    Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

  11. 11. Breyting á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs - gistiþjónusta í landi Ketilsstaða

    Mál 1702128 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar, á vinnslustigi, tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna áforma um gistiþjónustu í landi Ketilstaða.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

  12. 12. 730 Öldugata 6 - afnot af skúr

    Mál 1705085 Allur ferill málsins

    Innsent erindi frá Sælínu Sigurjónsdóttir Öldugötu 8 Reyðarfirði varðandi afnot af skúr sem stendur á lóðinni Öldugötu 6 Reyðarfirði sem ákveðið hefur verið að rífa. Óskar Sælína eftir því að fá afnot af skúrnum til fimm ára með nokkrum kvöðum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að ræða við bréfritara

  13. 13. 750 Skólavegur 94 - byggingarleyfi - varmadæla

    Mál 1705080 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Högna Páls Harðarsonar, dagsett 9. maí 2017, þar sem sótt er um leyfi til setja upp varmadælu við hús hans að Skólavegi 94 á Fáskrúðsfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  14. 14. 740 Hlíðargata 12 - byggingarleyfi - klæða hús að utan

    Mál 1702200 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Gísla Gylfasonar, dagsett 22. febrúar 2017, þar sem sótt er um leyfi til að einangra- og klæða að utan hús hans að Hlíðargötu 12 á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  15. 15. 735 Dalbraut 4 - byggingarleyfi, tengivirki

    Mál 1705101 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Landsnets hf, dagsett 10. maí 2017, þar sem byggingaráform nýs tengivirkishúss á lóð fyrirtækisins að Dalbraut 4 á Eskifirði vegna spennuhækkunar á flutningskerfinu á austurlandi eru kynnt ásamt drögum af mögulegu umfangi byggingarinar. Reiknað er með um 300 m2 byggingu með fjörum 132 kV rofareitum. Mesta þakhæð er áætluð 7,5 m. Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa um skipulagsskilmála lóðarinnar við Dalbraut 4, dagsett 12. maí 2017.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið frekar og leggja fyrir nefndina aftur.

  16. 16. Umsókn um lóð að Bólsvör 2 Stöðvarfirði undir gámasvæði

    Mál 1705106 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Steinþórs Péturssonar fh. Fjarðabyggðahafna, dagsett 12. maí 2017, þar sem sótt er um lóðina Bólsvör 2 á Stöðvarfirði undir gámasvæði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni að Bólsvör 2 til Hafnarstjórnar og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  17. 17. 730 Mánagata 5 - byggingarleyfi

    Mál 1705081 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Kolbeins Guðnasonar, dagsett 9. maí 2017, þar sem sótt er um leyfi til að rífa húsið sem stendur á lóðinni að Mánagötu 5 á Reyðarfirði. Fyrirhugað er að byggja nýtt hús á lóðinni.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  18. 18. Umhverfisvöktun 2016 - Alcoa Fjarðaál - Ársskýrsla

    Mál 1705028 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar ársskýrsla Alcoa Fjarðaál umhverfisvöktun 2016.

  19. 19. Bundið slitlag á bút milli nýja Norðfjarðarvegar og slitlags við golfvöllinn

    Mál 1705107 Allur ferill málsins

    Innsent erindi frá Golfklúbbnum Byggðarholt, Eskifirði. Varðar að fá bundið slitlag á þann kafla sem verður eftir á milli nýja kaflans og að þeim sem fyrir er. Þarna er mjór malarvegur í dag.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra að funda með fulltrúa Vegagerðarinnar og bréfritara.