735 Dalbraut 4 - byggingarleyfi, tengivirki
Mál 1705101 Fyrst á dagskrá 13. maí 2017, síðast 3. júlí 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 176 liður 15
Lagt fram bréf Landsnets hf, dagsett 10. maí 2017, þar sem byggingaráform nýs tengivirkishúss á lóð fyrirtækisins að Dalbraut 4 á Eskifirði vegna spennuhækkunar á flutningskerfinu á austurlandi eru kynnt ásamt drögum af mögulegu umfangi byggingarinar. Reiknað er með um 300 m2 byggingu með fjörum 132 kV rofareitum. Mesta þakhæð er áætluð 7,5 m. Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa um skipulagsskilmála lóðarinnar við Dalbraut 4, dagsett 12. maí 2017.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið frekar og leggja fyrir nefndina aftur.
-
Bæjarstjórn, fundur 224 liður 3.15
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 176“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 180 liður 14
Lagt fram að nýju bréf Landsnets hf, dagsett 10. maí 2017, þar sem byggingaráform nýs tengivirkishúss á lóð fyrirtækisins að Dalbraut 4 á Eskifirði vegna spennuhækkunar á flutningskerfinu á austurlandi eru kynnt ásamt drögum af mögulegu umfangi byggingarinar. Reiknað er með um 300 m2 byggingu með fjörum 132 kV rofareitum. Mesta þakhæð er áætluð 7,5 m. Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa um skipulagsskilmála lóðarinnar við Dalbraut 4, dagsett 12. maí 2017. Lagt fram bréf Geislavarna ríkisins, dagsett 23. júní 2017, þar sem fram kemur að í 5 m fjarlægð frá sambærilegu tengivirki mælist ekki aukið segulsvið. Lagt fram hljóðkort Verkís hf fyrir fyrirhugað tengivirki, dagsett 28. júni 2017, en þar kemur fram að hávaði frá tengivirki fer aldrei yfir viðmiðunargildi reglugerðar.
Lesa alla bókunina (30 orð til viðbótar)
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að byggingaráform Landsnets hf samræmist skipulagsskilmálum svæðisins og gerir því ekki athugasemdir við byggingaráformin en hvetur Landsnet til að ásýnd mannvirkja falli vel að umhverfi.