Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

730 Sléttuá - framkvæmdaleyfi, efnistaka

Mál 1703094 Fyrst á dagskrá 13. maí 2017, síðast 1. júní 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 176 liður 1

    Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Eflu Austurlands fh. Sigurðar Baldurssonar, dagsett 26. apríl 2017, ásamt greinagerð og uppdrætti þar sem sótt er um leyfi til allt að 45.000 m3 efnistöku úr árfarvegi Sléttuár á þremur stöðum auk vinnslusvæðis á samtals 2,3 ha svæði. Fyrirhugað er að efnistaka úr námunni standi yfir í fimm ár. Á framkvæmdatíma og við verklok verða gerðar bakkavarnir í ánni. Námu- og vinnslusvæði verur fellt að umhverfinu í verklok en ekki er gert ráð fyrir að græða námusvæðin upp þar sem svæðið er allt ógróið. Umsagnir Landgræðslu Ríkisins og Fiskistofu liggja ekki fyrir. Efnistakan fellur undir lið 2.04, flokk C í 1. viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

    Lesa alla bókunina (27 orð til viðbótar)

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að framkvæmdin sé ekki umhverfismatsskyld og samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið þegar umsagnir liggja fyrir.

  2. Bæjarstjórn, fundur 224 liður 3.1

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 176“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is