730 Hafnargata 1 - byggingarleyfi - útisvæði
Mál 1703219 Fyrst á dagskrá 10. apríl 2017, síðast 1. júní 2017. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdirHafnir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 173 liður 10
Lagt fram bréf Árna Más Valdimarssonar fh. Sesam ehf / Sesam Brauðhús, dagsett 31. mars 2017 þar sem óskað er eftir leyfi til að setja skjólvegg við hellulagt svæði norðan húss fyrirtækisins að Hafnargötu 1 á Reyðarfirði. Jafnframt er óskað eftir leyfi til að setja upp skilti við n-a horn lóðarinnar og að Fjarðabyggð komi fyrir bekkjum með borðum og rusladalli á grassvæði norðan lóðarinnar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki samþykkt uppsetningu skjólveggar og skiltis utan lóðar. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjanda um lausnir. Frágangur á grassvæði verði í samráði við sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs.
-
Bæjarráð, fundur 518 liður 16.10
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 173“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 221 liður 4.10
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 173“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 176 liður 9
Lagt fram að nýju, eftir samþykkt um stækkun lóðar, bréf Árna Más Valdimarssonar fh. Sesam ehf / Sesam Brauðhús, dagsett 31. mars 2017 þar sem óskað er eftir leyfi til að setja skjólvegg við hellulagt svæði norðan húss fyrirtækisins að Hafnargötu 1 á Reyðarfirði. Jafnframt er óskað eftir leyfi til að setja upp skilti við n-a horn lóðarinnar og að Fjarðabyggð komi fyrir bekkjum með borðum og rusladalli á grassvæði norðan lóðarinnar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir uppsetningu skjólveggar og skiltis. Frágangur á grassvæði verði í samráði við sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs.
-
Bæjarstjórn, fundur 224 liður 3.9
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 176“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.