Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 518

24. apríl 2017, kl. 08:30 til 10:35, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 221 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 24.apríl s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umsögn vegna frumvarps til laga um skipulag haf- og strandsvæða

    Mál 1612045 Allur ferill málsins

    Bréf sem bæjarstjórar víða um land munu undirrita og senda umhverfis- og auðlindaráðherra, vegna frumvarps til laga um skipulag haf-og strandsvæða. Bæjarráð samþykkir innihald bréfs og felur bæjarstjóra að undirrita það.

  2. 2. Sveitarfélög sem reka HAUST

    Mál 1704050 Allur ferill málsins

    Minnisblað Heilbrigðiseftirlits Austurlands til sveitarfélaga um skýrslu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis um Matvælastofnun (MAST), frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (UST) og frumvarp til breytinga á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í öllum þessum gögnum eru lagðar fram tillögur um verkefnatilfærslu og breytingar á starfsemi og verksviði heilbrigðisnefnda og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Sveitarfélög og sveitarstjórnarmenn eru hvött til að vera vel vakandi, kynna sér efni þessara gagna og standa vörð um verkefni sem sveitarfélögin hafa á sinni forsjá. Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega áðurnefndum breytingum sem fallnar eru til að veikja hlutverk heilbrigðiseftirlits sveitarfélaganna. Það skýtur skökku við að færa allt eftirlit og faglega umsjón frá nærsvæðum til suðvesturhornsins. Dæmin sanna, svo ekki verður um villst, að UST og MAST hafa ekki getu til að sinna eftirliti um land allt. Hér virðist vera á ferðinni barátta um opinbert fjármagn frekar en að tryggð sé góð þjónustu við íbúa og fyrirtæki.

  3. 3. Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum

    Mál 1608100 Allur ferill málsins

    Félags- og jafnréttismálaráðherra beinir því til sveitarfélaga að taka tillit til leiðbeinandi reglna velferðarráðuneytisins um sérstakan húsnæðisstuðning, um að meta skuli þörf fyrir slíkan stuðning á grundvelli framfærslubyrði og félagslegra aðstæðna, í stað þess að byggja einungis á hlutlægum tekju- og eignaviðmiðum. Vísað til umfjöllunar í félagsmálanefnd og að því loknu óskar bæjarráð eftir minnisblaði frá fjölskyldusviði vegna málsins.

  4. 4. Kaupvangur - beiðni um styrk 2017 vegna endurgerðar hússins

    Mál 1704071 Allur ferill málsins

    Framlögð styrkumsókn vegna fasteignaskatts 2017 fyrir Hafnargötu 15 Fáskrúðsfirði - Kaupvang sem er friðað hús. Umsóknin er í samræmi við 3. gr. reglna Fjarðabyggðar um styrkveitingar til greiðslu fasteignagjalda. Fasteignaskattur hússins 2017 nemur kr. 54.750. Umsögn skiplags- og byggingarfulltrúa er meðfylgjandi. Bæjarráð samþykkir styrkumsókn.

  5. 5. Öryggismál og eldvarnir jarðganga

    Mál 1704074 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar skýrsla er varðar kynnisferð til Noregs dagana 6.-9. mars 2017. Jafnframt lagður fram listi yfir búnaðarþörf slökkviliðs vegna jarðganga. Vísað til bæjarstjóra til frekari skoðunar.

  6. 6. Upplýsingaskilti við minnisvarða um franska fiskimenn við Íslandsstrendur

    Mál 1704078 Allur ferill málsins

    Bréf Guðrúnar Einarsdóttur er varðar hugmyndir um upplýsingaskilti á Fáskrúðsfirði vegna minnisvarða um franska fiskimenn við Íslandsstrendur. Vísað til menningar- og safnanefndar.

  7. 7. Norræna ráðherranefndin - samstarfsverkefni um sjálfbæra þróun í bæjum og borgum á Norðurlöndum

    Mál 1704080 Allur ferill málsins

    Upplýsingar um samnorrænt verkefni um sjálfbæra þróun í bæjum og borgum á Norðurlöndum. Hægt er sækja um þáttöku í verkefninu til 29.maí nk. Bæjarritara falið að athuga með þátttöku í verkefninu.

  8. 8. Bleiksárhlíð 56 - sala (gamla Hulduhlíð)

    Mál 1702215 Allur ferill málsins

    Kynnt opnun tilboða vegna sölu á Bleiksárhlíð 56 Eskifirði - gömlu Hulduhlíð. Eitt sameiginlegt tilboð barst í eignina að fjárhæð kr. 48.000.000. frá Kraft Pípulagnir ehf. og Járnborg ehf. Fyrir liggur afstaða fjármálaráðuneytisins f.h. ríkisins, um að hafna tilboðinu. Bæjarráð hafnar tilboði og felur fjármálastjóra afgreiðslu málsins.

  9. 9. Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1611104 Allur ferill málsins

    Skýrsla Capacent um greiningu á húsnæðismarkaði í Fjarðabyggð var lögð fram sem trúnaðarmál til kynningar á síðasta fundi. Umræða um skýrsluna og næstu skref í mótun húsnæðisstefnu Fjarðabyggðar. Umræðu um skýrsluna verður haldið áfram á næsta fundi. Skýrslu er vísað til umræðu í félagsmálanefnd og eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  10. 10. Ráðning sviðstjóra veitusviðs

    Mál 1702051 Allur ferill málsins

    Alls sóttu tíu aðilar um stöðu sviðsstjóri veitusviðs, en staðan var auglýst þann 11. febrúar sl. Capacent ráðningar, í samráði við bæjarstjóra, hafa unnið að ráðningarferlinu. Í símasambandi við fundinn var Jóna Björg Sigurjónsdóttir ráðgjafi hjá Capacent ráðningum sem fór yfir ráðningarferlið og mat á umsækjendum. Fyrir liggur tillaga bæjarstjóra um að Þorsteinn Sigurjónsson verkfræðingur, verði ráðin forstöðumaður veitusviðs sveitarfélagsins. Tillögunni til stuðnings er vísað í faglegt mat sem unnið var af Capacent ráðningum. Þá er einnig í tillögunni vísað til mannauðsstefnu sveitarfélagsins og reglur þess um ráðningarferli hjá sveitarfélaginu.

    Bæjarráð staðfestir tillögu bæjarstjóra um að ráða Þorstein Sigurjónsson sem sviðsstjóra veitusviðs.

  11. 11. Hraðakstur við leikskólann Dalborg Eskifirði

    Mál 1704100 Allur ferill málsins

    Bréf foreldrafélags Leikskólans Dalborgar er varðar hraðakstur við skólann. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.

  12. 12. Fundur almannavarnarnefndar 19.apríl 2017

    Mál 1704075 Allur ferill málsins

    Fundargerð fundar almannavarnarnefndar Fjarðabyggðar, Breiðdalshrepps og Djúpavogshrepps frá 19.apríl 2017, lögð fram til kynningar. Bæjarráð tekur undir að skoðað verði að sett verði á laggirnar ein almannavarnarnefnd fyrir allt Austurland, en áfram verði starfandi tvær aðgerðastjórnir.

  13. 13. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2017

    Mál 1702019 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 849, lögð fram til kynningar.

  14. 14. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2017

    Mál 1702036 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 15.mars 2017, lögð fram til kynningar.

  15. 15. Barnaverndarfundagerðir 2017

    Mál 1701220 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr 72. lögð fram til kynningar.

  16. 16. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 173

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 173 frá 10.apríl 2017, lögð fram til kynningar.

    1. 16.1 Seeds 20171703068
    2. 16.2 Refa- og minkaveiði fyrirkomulag 20171701232
    3. 16.3 Styrkir til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla1606146
    4. 16.4 735 Strandgata 12 - stálgrindarhús - byggingarleyfi1701186
    5. 16.5 Lögreglusamþykkt fyrir Fjarðabyggð - nr. 325/19991602082
    6. 16.6 Grjótnáma Kappeyri1703090
    7. 16.7 Ný reglugerð um heimagistingu, gististaði og skemmtanahald - verkferlar ofl.1611016
    8. 16.8 730 Hraun 3 - umsókn um framlengingu á stöðuleyfi1603068
    9. 16.9 204.mál til umsagnar frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög),1703137
    10. 16.10 730 Hafnargata 1 - byggingarleyfi - útisvæði1703219
    11. 16.11 Húsnæðisáætlun fyrir allt Austurland1703205
    12. 16.12 307.mál til umsagnar frumvarp til laga um umferðarlög (bílastæðagjöld),1703190
    13. 16.13 Þjónustu- og framkvæmdamiðstöð1609128
    14. 16.14 Minnisvarði um sveitarsamkomur í Norðfjarðarsveit1703202
    15. 16.15 740 Urðarbotnar, Nes- og Bakkagil - ofanflóðavarnir1602108
    16. 16.15 Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir1602108
  17. 17. Hafnarstjórn - 177

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 177 frá 10.apríl 2017, lögð fram til kynningar.

    1. 17.1 Ósk um heimild til að koma upp landtengingu1704025
    2. 17.2 Aðalfundur Cruise Iceland í Reykjavík þann 19. maí 20171704026
    3. 17.3 Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun1210091
  18. 18. Hafnarstjórn - 178

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 178 frá 18. apríl 2017, lögð fram til kynningar.

    1. 18.1 Þjónustu- og framkvæmdamiðstöð1609128
    2. 18.2 Fundargerðir Hafnasamband Íslands 20171701008
    3. 18.3 Fundargerðir CI á árinu 20171701009
    4. 18.4 Afmörkun hafnasvæða - réttindi og skyldur1702078
    5. 18.5 740 Frágangur svæðis ofan safnabryggju1704060
    6. 18.6 Smábátahöfn Stöðvarfiðir - stækkun1704061