Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 177

10. apríl 2017, kl. 16:00 til 16:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 518 liður 17

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 177 frá 10.apríl 2017, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 221 liður 5

    Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 10. apríl s.l.staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ósk um heimild til að koma upp landtengingu

    Mál 1704025 Allur ferill málsins

    Erindi frá Eskju hf dags. 4. apríl 2017 þar sem óskað er eftir heimild til að fyrirtækið komi sér upp rafmagnskassa til landtengingar fyrir skip sín á hafnarkanti innan frystihúss að Strandgötu 38.

    Hafnarstjórn samþykkir beiðni Eskju.

  2. 2. Aðalfundur Cruise Iceland í Reykjavík þann 19. maí 2017

    Mál 1704026 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Cruise Iceland verður haldinn þann 19. maí 2017 í Reykjavík.

    Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á aðalfundinn og um leið að bjóða samtökunum að halda aðalfund sinn 2018 í Fjarðabyggð.

  3. 3. Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun

    Mál 1210091 Allur ferill málsins

    Fundargerð dags. 4. apríl 2017 frá opnun tilboða í dælingu undir 2. áfanga Mjóeyrarhafnar. Tvö tilboð bárust, en lægra tilboðið átti Jan De Nul upp á 872.700? eða 106,2 millj. króna á gengi opnunardags eða 72,5% af kostnaðar áætlun sem nam 146.850.000 kr.

    Einnig lá fyrir fundinum bréf dags. 5. apríl 2017 frá Vegagerðinni þar sem lagt er til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda.

    Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda.