Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 178

18. apríl 2017, kl. 16:30 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 518 liður 18

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 178 frá 18. apríl 2017, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 221 liður 6

    Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 18. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Þjónustu- og framkvæmdamiðstöð

    Mál 1609128 Allur ferill málsins

    Unnið hefur verið að útfærslu skipulags þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar frá því síðla árs 2015. Starfsemi þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar er að halda utan um starfsemi hafna og þjónustumiðstöðva. Verkefni þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar eru víðtæk og veita stofnunum sveitarfélagsins þjónustu. Lagt fram til kynningar drög að skipuriti og skipulagi fyrir þjónustu- og framvæmdamiðstöð. Bæjarráð hefur staðfest fyrirliggjandi drög. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn. Marinó Stefánsson sviðstjóri framkvæmda, umhverfis og veitusviðs var í síma undir þessum lið. Málið kynnt.

  2. 2. Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2017

    Mál 1701008 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 393 dags. 27. mars 2017 lögð fram til kynningar.

  3. 3. Fundargerðir CI á árinu 2017

    Mál 1701009 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 7. apríl 2017 lögð fram til kynningar. Gert er ráð fyrir að næsti aðalfundur samtakanna verði haldinn í Fjarðabyggð.

  4. 4. Afmörkun hafnasvæða - réttindi og skyldur

    Mál 1702078 Allur ferill málsins

    Umræða um endurskoðun hafrnarreglugerðar fyrir Fjarðabyggðarhafnir og farið yfir fyrirliggjandi drög að breytingum.

    Hafnarstjórn frestar málinu og felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.

  5. 5. 740 Frágangur svæðis ofan safnabryggju

    Mál 1704060 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um svæði framan safnahúss á Norðfirði ofan safnabryggju og gerð gagna vegna frágangs á svæðinu.

    Hafnarstjórn leggur til að fengin verði tilboð í gerð gagna.

  6. 6. Smábátahöfn Stöðvarfiðir - stækkun

    Mál 1704061 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um smábátahöfnina á Stöðvarfirði. Kynnt skýrsla frá maí 2012 um smábátahöfnina. Hafnarstjórn vísar málinu til vinnu við fjárhagsáætlunargerð.