Hafnarstjórn, fundur 176
28. mars 2017, kl. 16:30 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 515 liður 22
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 176 frá 28.mars 2017, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 220 liður 10
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 28.mars s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Seatrade Fort Lauderdale 13. til 16. mars 2017
Mál 1611100 Allur ferill málsins
Samantekt fulltrúa Cruise Iceland dags. 23. mars 2017 vegna sýningarinnar Seatrade Fort Lauderdale nú í byrjun mars lögð fram til kynningar.
-
2. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Shikera Mikhail skipstjóraá Samskip Hoffell
Mál 1703167 Allur ferill málsins
Erindi frá Samskip dags. 24. mars 2017 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskildu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Shikera, Mikhail skipstjóra á MS Samskip Hoffell. Hafnarstjórn staðfestir undnþágu frá hafnsögu fyrir Shikera, Mikhail skipstjóra á MS Samskip Hoffell.
-
3. Lagfæring á sjóvörn við bílastæði björgunarsveitarinnar Ársól á Reyðarfirði
Mál 1703157 Allur ferill málsins
Erindi frá björgunarsveitinni Ársól dags. 23. mars 2017 þar sem óskað er eftir að grjótvörn við bílaplan að rampi björgunarsveitarinnar verði lagfærð. Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur framkvæmdastjóra að koma með kostnaðaráætlun fyrir verkið á næsta fund.
-
4. Göt á stálþili Norðfirði, Eskifirði og Reyðarfirði
Mál 1611062 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri fór yfir vinnu við viðgerð á götum á nokkrum stöðum á stálþilum hafnanna á Eskifirði, Norðfirði og Reyðarfirði og gerði grein fyrir þeim kostnaði við þær viðgerðir sem lokið er. Hafnarstjórn samþykkir útlagðan kostnað við þessar viðgerðir. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að fá álit á kostum til frekari viðgerða eða endurnýjunar á þessum þiljum. Tillaga þarf að liggja fyrir við vinnu fjárhagsáætunargerðar fyrir árið 2018.
-
5. Stefnumótun í fiskeldismálum
Mál 1703120 Allur ferill málsins
Gerð grein fyrir fundi formanns,varaformanns og framkvæmdastjóra með bæjarráði vegna eldismála.
-
6. Staða rekstra og framkvæmda 2017
Mál 1703172 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu rekstrar og framkvæmda 24. mars 2017. Trúnaðarmál.