Umsögn vegna frumvarps til laga um skipulag haf- og strandsvæða
Mál 1612045 Fyrst á dagskrá 12. desember 2016, síðast 27. apríl 2017. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 27. apríl 2017, frá 0:27:04
Í heiti málsins: Skipulag
Í hnotskurn
Fjarðabyggð skilaði umsögn um drög að frumvarpi til laga um skipulag haf- og strandsvæða þar sem lögð er áhersla á að sveitarfélög fari með skipulagsvald á strandsvæðum2. Síðar samþykkti bæjarráð bréf bæjarstjóra víða um land til umhverfis- og auðlindaráðherra um frumvarpið og bæjarstjórn staðfesti þá afgreiðslu í apríl 201745.
Staðan
Síðasta skráða skref málsins er að bæjarstjórn staðfesti 27. apríl 2017 afgreiðslu bæjarráðs um bréf bæjarstjóra til umhverfis- og auðlindaráðherra5.
Úr umræðu í bæjarstjórn
Á fundi bæjarstjórnar 27. apríl 2017 var greint frá því að bæjarstjórar hefðu sent umhverfis- og auðlindaráðherra ályktun þar sem frumvarpinu er mótmælt1. Lesið var úr ályktuninni, meðal annars að skipulagsskylda haf- og strandsvæða utan netlaga verði bundin í lög og að sveitarfélög þurfi að hafa beina aðild að skipulagi strandsvæða1. Ræðumaður lýsti þeirri von að ráðherra tæki tillit til sjónarmiðanna og sagði mikilvægt fyrir sveitarfélagið að fá skipulagsvald í fjörðum1.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan og þríhyrningur í upptöku. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 163 liður 1
Frumvarpið var lagt fram til kynningar, fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga kynntu umsögn sambandsins, og nefndin fól skipulags- og byggingarfulltrúa, bæjarstjóra og umhverfisstjóra að vinna umsögn þar sem haldið yrði fram kröfu um skipulagsvald sveitarfélagsins í fjörðum sínum.
Endursögn gervigreindar
Lagt fram til kynningar frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða.
Vigdís Hasler og Guðjón Bragason kynntu umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga í upphafi fundar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa, bæjarstjóra og umhverfisstjóra að vinna umsögn um frumvarpið. Nefndin leggur á það áherslu að í þeirri umsögn verði haldið fram þeirri kröfu að sveitarfélagið hafi skipulagsvald í fjörðum sínum.
-
Bæjarstjórn, fundur 213 liður 21
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða með 9 atkvæðum umsögn þar sem tekið er undir að skipulagsskylda haf- og strandsvæða utan netlaga verði bundin í lög, lögð er áhersla á forræði sveitarfélaga í skipulagsmálum og skorað er á ráðuneytið að endurskoða frumvarpsdrögin.
Endursögn gervigreindar
Forseti bæjarstjórnar fylgdi umsögn bæjarstjórnar úr hlaði.
Umsögn Fjarðabyggðar um frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur óskað eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um skipulag haf- og strandsvæða. Frestur til þess að skila inn umsögn var 9. desember sl., en Fjarðabyggð fékk viðbótarfrest til 15. desember.
Lesa alla bókunina (462 orð til viðbótar)
Skipulagslög nr. 123/2010 taka eingöngu til skipulagsáætlana innan lögsagnarumdæma sveitarfélaga, sem afmarkast af ytri mörkum netlaga. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar tekur undir þau sjónarmið, að brýnt sé að skipulagsskylda haf- og strandsvæða utan netlaga verði einnig bundin í lög, ekki hvað síst með hliðsjón af vaxandi umsvifum á strandsvæðum, s.s. vegna fiskeldis og efnistöku.
Jafnframt undirstrikar bæjarstjórn mikilvægi þess að skipulagslöggjöf gangi ekki á hefðbundið forræði sveitarfélaga í skipulagsmálum. Skipulagsmál eru eitt mikilvægasta stjórntæki hverjar sveitarstjórnar. Aðalskipulag endurspeglar í samspili við deiliskipulag, vilja samfélagsins og framtíðarsýn gagnvart landnotkun og framtíðarþróun. Forræði sveitarfélaga tryggir jafnframt að stjórnvaldsfyrirmæli skipulagsáætlana byggi á lýðræðislegum grunni sveitarstjórna.
Strandsvæði eru ásamt innfjörðum og flóum, hluti af skipulagsáætlunum sveitarfélaga með bæði beinum og óbeinum hætti. Séu þessi svæði slitin úr samhengi við skipulagsáætlanir sveitarfélaga, gæti það haft í för með sér vandmeðfarið óhagræði og árekstra ólíkra hagsmuna, með þeim afleiðingum að þau grundvallarmarkmið skipulagslöggjöfar verða fyrir borð borin, sem stuðla að nýtingu og verndun auðlinda á sjálfbærum grunni í þágu efnahagslegrar uppbyggingar og félagslegrar velferðar.
Á meðal annarra alvarlegra annmarka má nefna að strandsvæðaskipulag afmarkast 30m landmegin við meðalstórstraumsflóð, sem þýðir að skipulagsáætlanir haf- og strandsvæða myndu skarast við aðalskipulagsáætlanir sveitarfélaga. Þá er ráðherraskipuðum svæðisráðum falin ábyrgð á skipulagsgerðinni og ber þeim einungis að taka tillit til skipulagsáætlana þeirra sveitarfélaga sem eiga í hlut.
Þá hlýtur að orka tvímælis, að í stað þess að byggja á núverandi lagagrunni skipulagsmála, mæla drögin fyrir nýju fyrirkomulagi, sem svo er ætlað að starfa samhliða því sem fyrir er. Standi vilji ríkisvaldsins til þess að efla skipulagsgerð, væri mun nærtækara, að fella skipulag haf- og strandsvæða að núverandi fyrirkomulagi skipulagsmála og tryggja fjármögnun þess með skilgreindum tekjustofnum.
Síðast en ekki síst ganga tillögur frumvarpsdraganna gegn þeirri meginreglu að efla skuli staðbundið vald og ákvarðanatöku með tilliti til almannahagsmuna og skynsamrar meðferðar opinberra fjármuna. Þessi nándarregla er ein helsta ástæða þess að viðamikil verkefni á borð við grunnskólarekstur hafa verið færð frá ríki til sveitarfélaga. Enn sér ekki fyrir endann á þeirri þróun og sætir því furðu að nú skuli kveða við allt annan tón í skipulagsmálum, þrátt fyrir þá staðreynd að málaflokkurinn er á meðal mikilvægustu kjarnaverkefna sveitarfélaga.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar skorar því á Umhverfis- og auðlindaráðuneyti að endurskoða umrædd frumvarpsdrög m.t.t. þess að sveitarfélög fari með skipulagsmál á haf- og strandsvæðum með sambærilegum hætti og lagt er til í stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2014 til 2018, lið 3.4.8:
Sambandið gætir hagsmuna sveitarfélaga við mótun lagafrumvarps um skipulag haf- og strandsvæða. Í þeirri vinnu verði lögð áhersla á að skipulag strandsvæða, allt að einni sjómílu út frá grunnlínu landhelginnar, verði á forræði sveitarfélaga. Einnig verði lögð áhersla á að fram fari nauðsynlegar grunnrannsóknir á strandsvæðum þar sem álag vegna nýtingar er mikið, til að auðvelda gerð skipulags- og nýtingaráætlana.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða umsögnina með 9 atkvæðum.
-
Bæjarstjórn, fundur 213 liður 4.1
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 163“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2017
Bæjarráð, fundur 518 liður 1
Bæjarráð samþykkti innihald bréfs sem bæjarstjórar víða um land munu undirrita og senda umhverfis- og auðlindaráðherra vegna frumvarpsins og fól bæjarstjóra að undirrita það.
Endursögn gervigreindar
Bréf sem bæjarstjórar víða um land munu undirrita og senda umhverfis- og auðlindaráðherra, vegna frumvarps til laga um skipulag haf-og strandsvæða. Bæjarráð samþykkir innihald bréfs og felur bæjarstjóra að undirrita það.
-
Bæjarstjórn, fundur 221 liður 3.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 518“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Opinber fundargerð á fjardabyggd.is
Upptaka bæjarstjórnarfundar 221. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:27:04 frumvarp til laga um skipulag hafa strandsvæða og nokkrir bæjarstjórar hafa samt sent umhverfis og auðveldaráðherra fyrir þjóðláksbókur þessi ályktun þess sem þeir mótmæla harðlega þessu frumvarpi og lesagerð við forseta nokkur aðeins hérna úr þessari ályktun þeirra og bókum undir þetta er bæjar og sveitarstjórar mót mótmælaarlega fyrir aðför að sjálfstjóld sveitarfélaga og forræði þeirra í
- 0:27:32 landsveitarfélaga og forræði þeirra í skipulagsmálum sem í frumvarpinu felst undirritaðir taka undir og leggja áherslu á þau sjónarmið að skipulag skyldar hafa á strandsvæða utan netalaga erfðibundin í lög ekki síst með hliðsjón að vaxa til um þeim og strandsvæðum svo sem verða fiskeldi svo siglingapartækti sveitarfélögin verða að hafa beina aðild að skipulagi strandsvæða enda mikið er búið fyrir þau að vel takist til á svæðum sem varða beinlis þeir að efnahags og samfélagsmál
- 0:28:00 skipulagsmál eru eitt mikilvægasta stjórntæki hverrar sveitarstjórnar og endurspegla vilja samfélagsins og framtíðarsýnum landnotkun og framtíðarþróun forræði sveitarfélaga tryggir jafnframt að stjórnvandafyrirmæli skipulagsáætlunar byggi á lýðaðslu spurning sveitarstjónamála strandsvæði þar mun það innfyllur og flóar tengja skipulagsáættunum sveitarfélag með beinum og ókveðnum hættum verði strandsvæði styttur nú samningi við skipulagsáætanir sveitar í sveitarfélagar getur með sveitarfélagi getur haft í för með með sem óhagaði og álægægðsla ólægsl
- 0:28:28 þessi óhagræði og áhersla ólíkra hagsmuna með þeim afleiðingum að fyrir borð verði borin þau grundvallarmarkmið skipulags löggjafar sem stuðla nýtingu og verndun auðlinda á sjálfari grunni í þágu efnahagslegrar uppbyggingar og félagslegrar velferðar
- 0:28:56 og allir á austurlandi sem sem skrifa undir þessa áskorun og ég vona að svo sannarlega að umhverfis og umferðaráðherra hlusti á þessi mótmæli að eins og við höfum oft rætt hér á náður að það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að ná stjórn á skipulagsvaldi fjörðum