Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Fólkvangur Neskaupstaðar - ástand friðlandsins 2017

Mál 1705104 Fyrst á dagskrá 13. maí 2017, síðast 3. júlí 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 176 liður 4

    Framlagt minnisblað umhverfisstjóra um ástand göngustíga í Fólkvangi Neskaupstaðar. Sökum snjóaleysis s.l. og aukinnar umferðar um svæðið hafa stígarnir gefið undan og brýrnar illa farnar.

    Mikilvægt er að grípa til aðgerða í sumar, lagfæra stíga á mýrarsvæðum, byggja nýjar brýr og leiðbeina um gönguleiðir og loka hentugleikastígum.

    Það fékkst ekki styrkur frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til uppbyggingar samkvæmt nýju deiliskipulagi.

    Umhverfisstjóra falið að yfirfara kostnað og leggja aftur fyrir nefndina

  2. Bæjarstjórn, fundur 224 liður 3.4

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 176“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 180 liður 20

    Lögð fram tillaga umhverfisstjóra um ástand stíga í Fólkvangi Neskaupstaðar og væntanlegan kostnað við endurbætur á stígum í Fólkvanginum. Greiningin unnin samkvæmt beiðni 176. fundar nefndarinnar þann 13. maí sl.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að unnið verði að verndun svæðisins og byggðir pallar yfir mýrar þar sem göngustígar eru verst útlítandi. Umhverfisstjóra og sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram.