Bæjarráð, fundur 520
8. maí 2017, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 223 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Pálína Margeirsdóttir, Dýrunn Pála Skaptadóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir,Sævar Guðjónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 8. maí s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Almenningssamgöngur 2016
Mál 1602039 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Strætisvagna Austurlands um skipulag almenningssamgangna á Austurlandi. Jafnframt lögð fram fundargerð 11.stjórnarfundar frá 4.maí.
Bæjarráð staðfestir þátttöku í skipulögðum samgöngum á Austurlandi.
-
2. Leigulönd í Fjarðabyggð
Mál 1610078 Allur ferill málsins
Samkvæmt samþykkt eigna- skipulags- og umhverfisnefndar er lagt til að gjaldskrá fyrir leigulönd verði numin úr gildi.
Bæjarráð samþykkir að í tengslum við breytingar á reglum um leigulönd í Fjarðabyggð verði gjaldskráin felld úr gildi.
-
3. Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar
Mál 1606041 Allur ferill málsins
Framlögð drög að samningi við Íslenska Gámafélagið um jarðgerð og hirðu lífræns úrgangs. Í ágúst nk. verður bætt við brúnni tunnu og verður farið í sérstakt kynningarátak því tengdu. Jarðgerð fer fram á athafnasvæði verktaka á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
4. 434.mál til umsagnar tillöga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017 - 2021
Mál 1705014 Allur ferill málsins
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017-2021, 434. mál. Umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk.
Vísað til félagsmálanefndar.
-
5. 435.mál til umsagnar frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði
Mál 1705017 Allur ferill málsins
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði, 435. mál. Umsögn berist eigi síðar en 10.maí nk.
-
6. 375.mál til umsagnar frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn),
Mál 1705025 Allur ferill málsins
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 375. mál. Umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk.
-
7. 439.mál til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál),
Mál 1705029 Allur ferill málsins
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga(innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál), 439. mál. Umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk. Vísað til félagsmálanefndar.
-
8. 438. mál til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir,
Mál 1705030 Allur ferill málsins
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 438. mál. Umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk. Vísað til félagsmálanefndar.
-
9. Ársreikningur Búseta 2016
Mál 1705039 Allur ferill málsins
Framlagður ársreikningur Búseta Norfirði fyrir árið 2016 ásamt tölvupósti frá KPMG og gildandi skráningu félagsins í samvinnufélagaskrá.
Bæjarráð staðfestir reikning fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undiritun hans. Fjármálastjóra falið að vinna að málum félagsins áfram.
-
10. Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2016
Mál 1705041 Allur ferill málsins
Framlagður sjálfstæður ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2016 til áritunar.
Bæjarráð staðfestir ársreikning með undirritun sinni.
-
11. Ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar 2016
Mál 1705042 Allur ferill málsins
Framlagður sjálfstæður ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar fyrir árið 2016 til áritunar.
Bæjarráð staðfestir ársreikning með undirritun sinni.
-
12. Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns 2016
Mál 1705043 Allur ferill málsins
Framlagður sjálfstæður ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. til áritunar og einnig fyrir stjórn eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf.
Bæjarráð staðfestir ársreikning með undirritun sinni.
-
13. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2017
Mál 1702075 Allur ferill málsins
Ársreikningur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga fyrir árið 2016 lagður fram til kynningar.
Bæjarráð samþykkir ársreikninginn fyrir sitt leyti.
-
14. Fullnaðarafgreiðslur embættismanna og prókúra 2017
Mál 1702120 Allur ferill málsins
Framlagðar breytingar á reglum um fullnaðarafgreiðslur embættismanna.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 175
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr.175 frá 2.maí 2017, lögð fram til kynningar.
-
16. Íþrótta- og tómstundanefnd - 34
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefnar, nr.34 frá 27.apríl 2017, lögð fram til kynningar.