439.mál til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál),
Mál 1705029 Fyrst á dagskrá 8. maí 2017, síðast 18. maí 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Félagsmálanefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdirVelferð
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Bæjarráð, fundur 520 liður 7
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga(innleiðing samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks, stjórnsýsla og húsnæðismál), 439. mál. Umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk. Vísað til félagsmálanefndar.
-
Félagsmálanefnd, fundur 94 liður 5
Breytingar þær sem lagðar eru til í frumvarpi þessu eru í fyrsta lagi á ákvæðum laganna um skipulag og stjórn og hlutverk félagsmálanefnda. Eru þar lagðar til breytingar á skipulagi félagsþjónustu innan sveitarfélaga til samræmis við endurskoðuð sveitarstjórnarlög frá árinu 2011. Þá
Lesa alla bókunina (360 orð til viðbótar)
er einnig hnykkt á eftirlitshlutverki ráðherra, m.a. með því að fela honum að úrskurða í ágreiningsmálum sem lúta að því hvort reglur sveitarfélagsins eigi sér fullnægjandi lagastoð. Breytingarnar lúta líka að því að skýra feril ágreiningsmála og kæra innan stjórnkerfisins.
Í öðru lagi er í frumvarpinu að finna ákvæði um samráð við notendur þjónustunnar og sérstök notendaráð fyrir einstaka hópa notenda.
Í þriðja lagi er fjallað um samninga við einkaaðila og starfsleyfisveitingar til einkaaðila sem hyggjast veita þjónustu sem fjallað er um í lögunum. Eru ákvæðin færð til samræmis við ákvæði sem lögð eru til í frumvarpi til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir sem lagt er fram samhliða frumvarpi þessu. Er einnig lagt til að ákvæði um starfsfólk sem vinnur við félagsþjónustu séu færð til samræmis við þau lagaákvæði sem gilda um fólk sem starfar í þjónustu
við fatlað fólk.
Í fjórða lagi eru lagðar til breytingar á VII. kafla sem nú fjallar um félagslega heimaþjónustu. Er lagt til að fyrirsögn hans breytist og verði „Stuðningsþjónusta“. Þjónusta þessi er fyrir alla
sem hafa viðvarandi eða tímabundnar stuðningsþarfir en gengið er út frá því að þegar þjónustuþarfir verði meiri en sem nemur 10?15 tímum á viku taki við sértækari þjónusta, m.a. á grundvelli frumvarps þess sem lagt er samhliða þessu um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir.
Ákvæði um akstursþjónustu, sem hafa verið í lögum um málefni fatlaðs fólks, eru skýrð og flutt í lög um félagsþjónustu sveitarfélaga þar sem um almenna þjónustu er að ræða fyrir fatlað fólk, óháð því hversu mikla þjónustu því er veitt.
Að lokum er ákvæðum um húsnæðismál breytt til samræmis við frumvarp til laga um breytinguá lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, sem ætlunin er að leggja fram aftur, en frumvarpið var lagt fram á Alþingi á 145. löggjafarþingi, en varð ekki útrætt. Í því frumvarpi eru ákvæði um
skyldur sveitarfélaga í húsnæðismálum gerð skýrari. Er þannig gert ráð fyrir að almenn ákvæði um skyldu sveitarfélaga t.d. til að tryggja framboð á hagstæðu og viðeigandi húsnæði í sveitarfélaginu
verði öll á einum stað, í lögum um húsnæðismál.
Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemd við frumvarpið en vísað er til umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
-
Bæjarstjórn, fundur 223 liður 1.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 520“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 223 liður 7.5
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 94“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.