Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

438. mál til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir

Mál 1705030 Fyrst á dagskrá 8. maí 2017, síðast 18. maí 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Félagsmálanefnd.

Í heiti málsins: Velferð

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Bæjarráð, fundur 520 liður 8

    Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir, 438. mál. Umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk. Vísað til félagsmálanefndar.

  2. Félagsmálanefnd, fundur 94 liður 6

    Markmið laganna er að fatlað fólk eigi kost á bestu þjónustu sem unnt er að veita á hverjum tíma til að koma til móts við sértækar stuðningsþarfir þess. Þjónustan skal miða að því að fatlað fólk fái nauðsynlegan stuðning til þess að það geti notið fullra mannréttinda til jafns við aðra og skapa því skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum.

    Til þess að auka val fatlaðs fólks um þjónustu og fyrirkomulag stuðnings skulu sveitarfélög vinna að innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar í samræmi við 11. gr. á tímabilinu 2017-2022.

    Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemd við frumvarpið en vísað er til umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

  3. Bæjarstjórn, fundur 223 liður 1.8

    Fundargerðin „Bæjarráð - 520“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 223 liður 7.6

    Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 94“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is