434.mál til umsagnar tillöga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017-2021
Mál 1705014 Fyrst á dagskrá 8. maí 2017, síðast 18. maí 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Félagsmálanefnd.
Í heiti málsins: Velferð
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Bæjarráð, fundur 520 liður 4
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017-2021, 434. mál. Umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk.
Vísað til félagsmálanefndar.
-
Félagsmálanefnd, fundur 94 liður 3
Meginforsendur og markmið stefnu í málefnum fatlaðs fólks eru að samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks verði innleiddur í alla lagaumgjörð og framkvæmd þannig að full mannréttindi fatlaðs fólks verði efld, varin og tryggð til jafns við aðra og skilyrði sköpuð til að fatlað fólk geti lifað sjálfstæðu lífi á eigin forsendum.
Lesa alla bókunina (184 orð til viðbótar)
Lögð verði áhersla á mannréttindi og bann við mismunun á grundvelli fötlunar þannig að tryggt verið að fatlað fólk njóti mannréttinda og mannfrelsis til jafns við aðra og því tryggður stuðningur til að njóta þeirra réttinda. Þá mun fatlað fólk njóta góðs af öllum almennum aðgerðum stjórnvalda, s.s. á sviði húsnæðis-, mennta-, trygginga- og atvinnumála.
Í framkvæmdaáætlun sem miðar að því að ná fram markmiðum stefnu í málefnum fatlaðs fólks verði lögð áhersla á ákveðin grunngildi, svo sem eitt samfélag fyrir alla, jöfn tækifæri og lífskjör, algilda hönnun sem gagnast öllum og því að fatlað fólk skuli vera við stjórnvölinn í eigin lífi. Skilyrði verði sköpuð fötluðu fólki til að lifa sjálfstæðu lífi með aðgengi til jafns við aðra, hvort sem um ræðir aðgengi að manngerðu umhverfi, samgöngum, þjónustu, upplýsingum eða möguleikum til tjáskipta, sem auðveldar samfélagsþátttöku og virkni í daglegu lífi.
Framkvæmdaáætlunin byggist á þremur lykilþáttum sem eru forsendur þjónustu við fatlað fólk. Þessir þættir eru fjármögnun, upplýsingasöfnun og upplýsingamiðlun. Allir þessir þættir reyna á samvinnu ríkis og sveitarfélaga.
Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna en vísað er til umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
-
Bæjarstjórn, fundur 223 liður 1.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 520“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 223 liður 7.3
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 94“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.