Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

436. mál til umsagnar frumvarp til laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna

Mál 1705020 Fyrst á dagskrá 9. maí 2017, síðast 18. maí 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Félagsmálanefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Félagsmálanefnd, fundur 94 liður 4

    Með frumvarpi þessu er lagt til að í íslenskri löggjöf verði kveðið á um meginregluna um jafna meðferð einstaklinga óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.

    Frumvarpinu er ætlað að hafa þau áhrif að vinna gegn mismunun og koma á og viðhalda jafnri meðferð einstaklinga óháð kynþætti og þjóðernisuppruna. Enn fremur er frumvarpinu ætlað að hafa þau áhrif að stuðla að virkri þátttöku sem flestra í íslensku samfélagi óháð kynþætti

    Lesa alla bókunina (156 orð til viðbótar)

    og þjóðernisuppruna sem og að koma í veg fyrir félagslega einangrun einstaklinga vegna fyrrnefndra ástæðna. Þá er frumvarpinu jafnframt ætlað að vera liður í því að hindra að skoðanir á mismunandi verðleikum kynþátta festi hér rætur. Með frumvarpinu verður einstaklingum sem telja sér mismunað á grundvelli kynþáttar og þjóðernisuppruna veitt aukin réttarvernd. Enn fremur verður einstaklingum sem telja sér mismunað

    á grundvelli kynþáttar eða þjóðernisuppruna, utan vinnumarkaðar, í fyrsta skiptið hér á landi veitt heimild til að leita réttar síns til úrskurðarnefndar innan stjórnsýslunnar. Þannig er frumvarpinu ætlað að stuðla að auknu jafnrétti í samfélaginu.

    Einstaklingar munu því njóta meiri verndar en þeir hafa áður hafa notið í tilteknum tilvikum en gera verður ráð fyrir að áhrif frumvarpsins verði lítil á þeim sviðum þar sem þegar eru í gildi lög sem banna mismunun á grundvelli kynþáttar eða þjóðernisuppruna, svo sem innan stjórnsýslunnar.

    Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemd við frumvarpið en vísað er til umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

  2. Bæjarstjórn, fundur 223 liður 7.4

    Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 94“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is