Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Samningur um félagsstarf eldri borgara í Neskaupstað

Mál 1606028 Fyrst á dagskrá 9. maí 2017, síðast 1. júní 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Félagsmálanefnd.

Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Félagsmálanefnd, fundur 94 liður 10

    Samkvæmt 40. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga skal sveitarfélag tryggja öldruðum aðgang að félags- og tómstundastarfi við þeirra hæfi.

    Í Neskaupstað hefur Fjarðabyggð haldið úti félagsstarfi í Breiðabliki. Starfsemin þar hefur með árunum þróast í að þangað mæta aðeins íbúar Breiðabliks og helst í þeim tilgangi að taka í spil.

    Á sama tíma hefur Félag eldri borgara á Norðfirði verið með fjölbreytta og vel skipulagða dagskrá í Sigfúsarhúsi fyrir félagsmenn.

    Lesa alla bókunina (97 orð til viðbótar)

    Viðræður hafa verið á milli Fjölskyldusviðs og stjórnar Félags eldri borgara á Norðfirði um að gera með sér sams konar þjónustusamning og félögin á Eskifirði og Fáskrúðsfirði hafa gert, þannig að Félag eldri borgara í Neskaupstað taki að sér að tryggja öldruðum í Neskaupstað aðgang að félags- og tómstundastarfi við þeirra hæfi sbr. ákvæði í 40. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.

    Á fundi Félagsmálastjóra og stjórn Félags eldri borgara á Norðfirði var

    samþykkt að ganga til samninga fyrir næsta starfstímabil með fyrirvara um

    samþykki félagsmálanefndar og bæjarráðs.

    Félagsmálanefnd samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs til staðfestingar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 223 liður 7.10

    Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 94“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarráð, fundur 522 liður 5

    Framlögð drög að þjónustusamningi á milli Fjarðabyggðar og Félags eldri borgara á Norðfirði um að félagið taki að sér að tryggja öldruðum í Neskaupstað aðgang að félags- og tómstundastarfi við þeirra hæfi sbr. ákvæði í 40. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Félagsmálanefnd hefur fjallað um samning og vísar honum til staðfestingar bæjarráðs.

    Bæjarráð staðfestir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  4. Bæjarstjórn, fundur 224 liður 1.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 522“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is