Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 483

8. ágúst 2016, kl. 09:00 til 00:00, í Egilsbraut 1, Neskaupstað. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Valdimar O Hermannsson, varaformaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 204 liður 5

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu.

    Fundargerð bæjarráðs 8. ágúst s.l. kynnt og rædd.

Dagskrá

  1. 1. Dekkjakurl á spark- og knattspyrnuvöllum í Fjarðabyggð

    Mál 1602155 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa vegna framkvæmda við að fjarlægja dekkjakurl af sparkvöllum. Hreinsa þarf upp kurl á öllum sparkvöllunum fimm . Bæjarráð samþykkir að farið verði í framkvæmdina og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa og fjármálastjóra að fara yfir fjárhagslega hlið málsins.

  2. 2. Þinghólsvegur 3 - kauptilboð

    Mál 1607061 Allur ferill málsins

    Nýtt kauptilboð í Þinghólsveg 3 í Mjóafirði, frá Samúel Fjallmann Sigurðssyni og Láru Björnsdóttur. Bæjarráð samþykkir tilboð Samúels og Láru að fjárhæð kr. 4.000.000.-

  3. 3. Franskir dagar og Íslandshátíð í Gravelines 2016

    Mál 1605002 Allur ferill málsins

    Lagt fram þakkarbréf Sendiherra Frakka á Íslandi vegna Franskra Daga 2016.

  4. 4. Norðfjarðarflugvöllur - klæðning

    Mál 1410115 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar endanleg samningsdrög milli Fjarðabyggðar og Isavia. Stefnt er að verklokum í júlí 2017.

  5. 5. Kaup á myndefni úr Fjarðabyggð

    Mál 1304075 Allur ferill málsins

    Kynning á myndefni úr Fjarðabyggð. Þórarinn Hávarðsson kom á fundinn og kynnti myndefni í hans eigu. Um er að ræða upptökur frá árunum 1983 til 2004 en meginefnið er frá árunum 1989 til 2002. Bæjarráð vísar erindinu til menningar- og safnanefndar með ósk um umsögn.