Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Kaup á snjótroðara 2016

Mál 1606064 Fyrst á dagskrá 9. júní 2016, síðast 18. ágúst 2016. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Bæjarstjórn, fundur 202 liður 13

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi máli úr hlaði.

    Fram lögð tillaga um kaupa á snjótroðara fyrir skíðasvæðið í Oddsskarði sbr. minnisblað frá íþrótta- og tómstundafulltrúa.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum að fela bæjarstjóra að ganga til samninga um kaup á notuðum troðara og leggja fyrir bæjarráð samning til staðfestingar.

  2. Bæjarráð, fundur 479 liður 3

    Tillögu um kaupa á snjótroðara fyrir skíðasvæðið í Oddsskarði sbr. minnisblað frá íþrótta- og tómstundafulltrúa vísað frá bæjarstjórn til bæjarráðs.

    Bæjarstjórn fól bæjarstjóra að ganga til samninga um kaup á notuðum troðara og leggja fyrir bæjarráð samning til staðfestingar.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi kaupsamning við Doppelmayr skíðalyftu ehf. um kaup á snjótroðara að fjárhæð 300.000 EUR með tilgreindum aukabúnaði og felur bæjarstjóra undirritun hans. Afhending fer fram í janúar 2017 og innágreiðsla nemur 15% af kaupverði við undirskrift samnings. Bæjarráð vísar kaupum á troðara til fjárhagsáætlunar 2017.

  3. Bæjarstjórn, fundur 204 liður 1.3

    Fundargerðin „Bæjarráð - 479“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is