Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - fræðslunefnd
Mál 1605157 Fyrst á dagskrá 1. júní 2016, síðast 13. október 2016. 14 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrárSkólar og fræðsla
Í hnotskurn
Málið snýst um fjárhagsramma og starfsáætlun fræðslumála Fjarðabyggðar fyrir árið 201715. Fræðslunefnd taldi vanta 20 milljónir króna til að rekstur rúmaðist innan úthlutaðra fjárheimilda, og bæjarráð vísaði málinu til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun og frekari skoðunar bæjarstjóra1112.
Staðan
Bæjarráð vísaði málinu til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2017 og frekari skoðunar bæjarstjóra, og bæjarstjórn staðfesti þá fundargerð 13. október 20161213.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Fræðslunefnd, fundur 28 liður 8
Sviðsstjóri kynnti breytt ferli við fjárhagsáætlanagerð og var falið að gera drög að starfsáætlun út frá umræðu í nefndinni.
Endursögn gervigreindar
Sviðstjóri gerði grein fyrir breyttu ferli við fjárhagsáætlanagerð fyrir árið 2017. Meginbreytingin er sú að drögum að fjárhagsrömmum fastanefnda er úthlutað í maí og gert er ráð fyrir að fyrsta tillaga að starfsáætlun verði lögð fyrir fastanefndir að sumri, þar sem fram koma áherslubreytingar á starfsemi ásamt tillögum að breytingum á þjónustu. Mánaðarmótin ágúst/september úthlutar bæjarráð fjárhagsrömmum. Tilgangurinn með þessari breytingu er að ná fram betri upplýsingum fyrir úthlutun fjárhagsramma til fastanefnda. Farið var yfir starfsáætlun 2016 og fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar og sviðsstjóra falið að gera drög að starfsáætlun á grunni þeirrar umræðu sem fram fór í nefndinni.
-
Bæjarstjórn, fundur 202 liður 4.8
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 28“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Fræðslunefnd, fundur 29 liður 7
Nefndin fór yfir tillögu að úthlutun ramma, rekstrarstöðu fyrstu sjö mánaða ársins og drög að starfsáætlun og vísaði málinu til áframhaldandi vinnu.
Endursögn gervigreindar
Framlögð tillaga að úthlutun ramma við fjárhagsáætlunargerð í samræmi við reglur um fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2017. Farið var yfir rekstrarstöðuna fyrir sjö fyrstu mánuði ársins og drög að starfsáætlun í fræðslumálum ásamt samþykktri fjölskyldustefnu. Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2017.
-
Bæjarstjórn, fundur 205 liður 4.7
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 29“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Fræðslunefnd, fundur 30 liður 3
Fyrir lá fjárhagsrammi frá bæjarráði, meðal annars með launum og launatengdum gjöldum upp á 1.565.863.000 kr., og fræðslustjóra og stjórnendum fræðslustofnana var falið að gera launa- og fjárhagsáætlun.
Endursögn gervigreindar
Fyrir liggur fjárhagsrammi fræðslunefndar sem bæjarráð úthlutaði á fundi 5. september. Fjárhagsramminn gerir ráð fyrir eftirfarandi:
Tekjur 204.183.000 kr.
Laun og launatengd gjöld 1.565.863.000 kr.
Millifærð húsa- og vélaleiga 527.311.000 kr.
Annar rekstrarkostnaður 284.912.000 kr.
Gert er ráð fyrir verðlagsbreytingum upp á 2%. Bæjarrað gerir ráð fyrir að fræðslunefnd skili launaáætlun 25. september og endanlegri fjárhagsáætlun fyrir 14. október. Fræðslustóra og stjórnendum fræðslustofnana er falin vinna við gerð launa- og fjárhagsáætlunar og nefndin gerir ráð fyrir að launaáætlun verði skilað fyrir fund nefndarinnar 21. september og fjárhagsáætlun fyrir fund nefndarinnar 12. október.
-
Bæjarstjórn, fundur 206 liður 6.3
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 30“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Fræðslunefnd, fundur 31 liður 6
Fræðslustjóri gerði grein fyrir vinnu við launa- og fjárhagsáætlun og starfsáætlun fyrir árið 2017.
Endursögn gervigreindar
Fræðslustjóri gerði grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið við gerð launa- og fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017 sem og starfsáætlun.
-
Bæjarráð, fundur 490 liður 3
Bæjarráð fór yfir tillögur að fjárhagsáætlun fræðslumála og áherslur nefndarinnar og vísaði málinu til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar.
Endursögn gervigreindar
Farið yfir tillögur að fjárhagsáætlun 2017 fyrir fræðslumálaflokkinn og áherslur í fjárhagsáætlunargerðinni. Farið yfir fjárhagsramma málaflokksins og áherslur fræðslunefndar fyrir komandi ár. Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar.
-
Bæjarstjórn, fundur 207 liður 2.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 490“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 207 liður 6.6
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 31“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Fræðslunefnd, fundur 32 liður 2
Nefndin taldi vanta 20 milljónir króna til að rekstur rúmaðist innan fjárheimilda, og fræðslustjóra var falið að semja minnisblað til bæjarráðs.
Endursögn gervigreindar
Fræðslunefnd fór yfir drög að starfsáætlun fyrir árið 2017 og fjárheimildir sem nefndin hefur til reksturs málaflokksins. Rekstraráætlunin tekur mið af úthlutunarreglum grunnskóla og drögum að úthlutunarreglum fyrir leikskóla. Þegar farið hefur verið yfir alla þætti áætlunarinnar er fjárþörf upp á 20 milljónir svo hægt verði að vera innan úthlutaðra fjárheimilda. Ræddir voru möguleikar sem grípa mætti til ef ekki er unnt að bæta við fjárhagsrammann. Fræðlustjóra falið að semja minnisblað til bæjarráðs þar sem farið er yfir áherslur nefndarinnar í fjárhagsvinnunni og tillögum nefndarinnar.
-
Bæjarráð, fundur 492 liður 2
Bæjarráð vísaði málinu til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2017 og frekari skoðunar bæjarstjóra.
Endursögn gervigreindar
Frá fundi fræðslunefnd 5. október s.l.
Fræðslunefnd fór yfir drög að starfsáætlun fyrir árið 2017 og fjárheimildir sem nefndin hefur til reksturs málaflokksins. Rekstraráætlunin tekur mið af úthlutunarreglum grunnskóla og drögum að úthlutunarreglum fyrir leikskóla.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2017 og frekari skoðunar bæjarstjóra.
-
Bæjarstjórn, fundur 208 liður 2.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 492“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 208 liður 4.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 32“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.