Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 490

28. september 2016, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, varamaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 207 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 28. september 2016, staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - Bæjarráð

    Mál 1605179 Allur ferill málsins

    Dagskrárlið vísað til næsta fundar bæjarráðs

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun 2017 í íþrótta- og tómstundamálum

    Mál 1605167 Allur ferill málsins

    Farið yfir tillögur að fjárhagsáætlun 2017 fyrir málaflokk íþrótta- og tómstundamála og áherslur í fjárhagsáætlunargerðinni. Farið yfir fjárhagsramma málaflokksins og áherslur íþrótta- og tómstundanefndar fyrir komandi ár. Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar.

  3. 3. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - fræðslunefnd

    Mál 1605157 Allur ferill málsins

    Farið yfir tillögur að fjárhagsáætlun 2017 fyrir fræðslumálaflokkinn og áherslur í fjárhagsáætlunargerðinni. Farið yfir fjárhagsramma málaflokksins og áherslur fræðslunefndar fyrir komandi ár. Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar.

  4. 4. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - félagsmálanefnd

    Mál 1605160 Allur ferill málsins

    Farið yfir tillögur að fjárhagsáætlun 2017 fyrir málaflokk félagsmála og áherslur í fjárhagsáætlunargerðinni. Farið yfir fjárhagsramma málaflokksins og áherslur félagsmálanefndar fyrir komandi ár. Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar.

  5. 5. Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum

    Mál 1608100 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað fjármálastjóra um áhrif nýrra húsnæðislöggjafar á Fjarðabyggð. Um er að ræða breytingar þar sem almennar húsaleigubætur færast frá sveitarfélögum til ríkis 1. janúar 2017 og verða húsnæðisbætur. Sveitarfélög annast sérstakan húsnæðisstuðning til tekjulágra einstaklinga og nema 15 til 17 ára.

    Þá er gert ráð fyrir að sveitarfélög marki sér stefnu í húsnæðismálum sem byggist m.a. á greiningu á stöðu húsnæðismarkaðarins og rökstuddri ákvörðun um að byggja húsnæði fyrir tekjulága og þá sem þurfa sérstakan stuðning. Stuðningur sveitarfélaga með sérstöku stofnframlagi vegna byggingar húsnæðis getur numið allt að 12 til 16% og framlagi ríkis allt að 18 til 28% háð því hvernig markaðsaðstæður.

    Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

  6. 6. Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugilda til leikskóla í Fjarðabyggð.Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi viðmiðunarreglur og vísar þeim til bæjarráðs til frekari umræðu og samþykktar.

    Mál 1603038 Allur ferill málsins

    Framlagðar viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugilda til leikskóla í Fjarðabyggð.

    Fræðslunefnd samþykkti tillögur að viðmiðunarreglum og vísar þeim til bæjarráðs til samþykktar.

    Bæjarráð samþykkir að vísa reglunum til frekari umfjöllunar í fræðslunefnd með hliðsjón af umræðum á fundi bæjarráðs og þær séu unnar áfram nánar í tengslum við fjárhagsáætlunargerðina 2017.

  7. 7. Ábendingar og óskir golfklúbbana í Fjarðabyggð til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar

    Mál 1609100 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa um ábendingar og óskir allra golfklúbbana sem snúa að eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Á 25. fundi íþrótta- og tómstundanefndar var rædd endurnýjun rekstrar- og uppbyggingarsamninga við forsvarsmenn golfklúbbana í Fjarðabyggð sem eiga og reka sína eigin íþróttaaðstöðu. Minnisblaði var vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd vísaði minnisblaðinu til bæjarráðs í tengslum við endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum sem eru til skoðunar.

    Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

  8. 8. Ósk um greiðslu aksturspeninga til og frá vinnu

    Mál 1607068 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur erindi frá þremur starfsmönnum slökkviliðs Fjarðabyggðar varðandi niðulagningu á skipulögðum akstri kl. 20:00 frá athafnasvæðinu á Hrauni í Reyðarfirði frá 1.mars sl.

    Bæjarráð hefur verið með erindi til meðferðar og samhliða því unnið að skoðun á uppsetningu ferðar kl. 20:00 sem fellur að skipulögðum samgöngum innan sveitarfélagsins, en fyrirtæki á svæðinu hafa einnig þörf fyrir akstur til og frá vinnustöðum á þessum tíma.

    Bæjarráð samþykkir að unnið verði að því að setja inn áætlunarleið sem hluta af skipulögðum samgöngum í Fjarðabygggð þar sem keyrt verður kl. 20:00 að kvöldi að og frá athafnasvæði á Hrauni í Reyðarfirði um sveitarfélagið eftir þeim leiðum sem eknar eru í dag. Vísað til framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs til úrvinnslu og endanlegrar tillögugerðar ásamt kostnaðar- og tekjuáætlun. Samráð verði haft við fjölskyldusvið m.a. vegna möguleika á samlegð í tómstundastarfi ungmenna.

  9. 9. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð

    Mál 1609135 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd, sem starfandi stjórn hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð, hefur samþykkt að stofna þriggja manna framkvæmdaráð yfir hjúkrunarheimilin í Fjarðabyggð.

    Nefndin felur Huldu Sigrúnu Guðmundsdóttur, Valdimar O. Hermannssyni og Hjördísi Helgu Seljan Þóroddsdóttur að sitja í framkvæmdaráði.

    Bæjarráð staðfestir fyrir sitt leyti skipun framkvæmdaráðs. Vísað til félagsmálanefndar og fræðslustjóra gerð erindisbréfs fyrir framkvæmdaráðið sem verður lagt bæjarráð.

  10. 10. Byggðaáætlun 2017 - 2023

    Mál 1604003 Allur ferill málsins

    Unnið er að gerð nýrrar byggðaáætlunar sem á að gilda 2017 til 2023.

    Haldinn verður fundur með fulltrúum Byggðastofnunar miðvikudaginn 5.október nk. kl. 16:00 - 18:45 í Valaskjálf.

    Bæjarráð hvetur bæjarfulltrúa til að mæta á ráðstefnuna.

  11. 11. 735 Strandgata 12 - lóðamál

    Mál 1301195 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samkomulagi milli SA ehf. og Fjarðabyggðar um að framkvæmdir við Strandgötu 12 á Eskfirði hefjist fyrir lok ársins 2016. Verði ekki af framkvæmdum fyrir tilskilinn frest mun lóðin renna aftur til Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð staðfestir samkomulag og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.

  12. 12. Ársreikningur 2015 - Veturhús

    Mál 1609031 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar ársreikningur Veturhúsa ehf fyrir árið 2015.

  13. 13. Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2014 - 2018

    Mál 1406124 Allur ferill málsins

    Sjálfstæðisflokkur tilkynning breytingu á nefndaskipan í fræðslunefnd.

    Lísa Lotta Björnsdóttir lætur af nefndarstörfum og sem varaformaður fræðslunefndar og Guðlaug Dana Andrésdóttir tekur sæti hennar sem varaformaður. Kjartan Glúmur Kjartansson tekur sæti aðalmanns í fræðslunefnd í stað Guðlaugar Dönu og Ragnar Sigurðsson tekur sæti varamanns í nefndinni.

  14. 14. Menningar- og safnanefnd - 25

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til kynningar menningar- og safnanefnd frá 19. september

  15. 15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 154

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til kynningar eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frá 19. september s.l.

  16. 16. Fræðslunefnd - 31

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til kynningar fundargerð fræðslunefndar frá 21. september s.l.

  17. 17. Íþrótta- og tómstundanefnd - 26

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til kynningar fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar 22. september s.l.

  18. 18. Fundargerðir félagsmálanefndar 2016

    Mál 1601210 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar félagsmálanefnd frá 20. júní s.l.