Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 32

5. október 2016, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Pálína Margeirsdóttir, formaður
  • Óskar Þór Guðmundsson, aðalmaður
  • Kjartan Glúmur Kjartansson, aðalmaður
  • Guðlaug Dana Andrésdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 492 liður 18

    Framlögð til kynningar fundargerð fræðslunefndar frá 5. október s.l.

  • Bæjarstjórn, fundur 208 liður 4

    Til máls tóku: Páll Björgvin Guðmundsson, Einar Már Sigurðarson, Validmar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 5. október s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ung fólk 2016 - lýðheilsa ungs fólks í Fjarðabyggð

    Mál 1609157 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur skýrsla Rannsóknar og Greiningar um lýðheilsu ungs fólks í Fjarðabyggð. Skýrslan birtir niðurstöður úr könnun sem gerð var meðal nemenda í 8.-10. bekk grunnskóla í febrúar 2016. Birtur er samanburður á Fjarðabyggð, Höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Í heild eru niðurstöðurnar mjög jákvæðar og flott ungt fólk bæði hér í Fjarðabyggð sem annars staðar á landinu. Vímuefnaneysla er mjög lítil og það á við um tóbak, áfengi sem og önnur vímuefni. Íþrótta- og tómstundaþátttaka er mikil og nemendur telja sig örugga í því umhverfi sem þeir eru í dags daglega. Nemendur eru í góðum og miklum samskiptum við foreldra og samband þeirra við kennara er gott og er mun betra en það mældist 2014. Flestum nemendum líður vel í skólanum, en þó skera stúlkur í 8. bekk sig úr en þar er líðan í skóla ekki nægilega góð. Í niðurstöðunum kemur fram að nemendur telja lestrarörðugleika hafa hamlandi áhrif á námsframmistöðu sína og það er meira hér í Fjarðabyggð en hjá nemendum annars staðar á landinu. Það er vaxandi kvíði og þunglyndi meðal stelpna á landinu öllu og þar eru stelpur í Fjarðabyggð ekki undantekning, sem er áhyggjuefni, en einnig svefn nemenda sem er of lítill, en um 30 - 40% nemenda sofa 7 klst eða minna á sólarhring, aðeins misjafnt eftir árgöngum. Fylgni er á milli mikils kvíða og þunglyndis og lítils svefns og mikillar notkunar á samskiptamiðlum. Niðurstöðurnar voru kynntar á fundum með foreldrum grunnskóla þriðjudaginn 27. september. Haldnir voru tveir fundir í Fjarðabyggð, á Norðfirði og Fáskrúðsfirði. Samtals mættu rúmlega 30 manns. Á vel lukkuðu málþingi um geðrækt sem haldið var laugardaginn 1. október í Grunnskóla Reyðarfjarðar var einnig farið yfir niðurstöður. Á málþingið mættu um 130 manns víðs vegar að af Austurlandi. Fræðslunefnd fagnar aukinni umræðu um lýðheilsu og felur fræðslustjóra að fara vel yfir niðurstöðurnar með starfsliði fjölskyldusviðs þannig að hægt verði að bregðast sem fyrst við þeim þáttum sem koma ekki nægilega vel út og um leið að vinna að því að viðhalda þeim góða árangri sem náðst hefur á mörgum sviðum. Fræðslunefnd telur mikilvægt að niðurstöðurnar verði einnig kynntar fyrir nemendum.

  2. 2. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - fræðslunefnd

    Mál 1605157 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd fór yfir drög að starfsáætlun fyrir árið 2017 og fjárheimildir sem nefndin hefur til reksturs málaflokksins. Rekstraráætlunin tekur mið af úthlutunarreglum grunnskóla og drögum að úthlutunarreglum fyrir leikskóla. Þegar farið hefur verið yfir alla þætti áætlunarinnar er fjárþörf upp á 20 milljónir svo hægt verði að vera innan úthlutaðra fjárheimilda. Ræddir voru möguleikar sem grípa mætti til ef ekki er unnt að bæta við fjárhagsrammann. Fræðlustjóra falið að semja minnisblað til bæjarráðs þar sem farið er yfir áherslur nefndarinnar í fjárhagsvinnunni og tillögum nefndarinnar.

  3. 3. Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugilda til leikskóla í Fjarðabyggð

    Mál 1603038 Allur ferill málsins

    Fjallað var um drög að viðmiðunarreglum um úthlutun tímamagns til leikskóla. Fræðlunefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs.