Fjárhagsáætlun 2016 - viðauki 1
Mál 1606036 Á dagskrá 9. júní 2016. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarstjórn, fundur 202 liður 10
Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.
Lesa alla bókunina (141 orð til viðbótar)
Framlagður viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2016 í samræmi við samþykkt bæjarráðs 6. júní 2016 ásamt minnisblað sviðsstjóra framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs um framkvæmdir við vesturálmu Nesskóla. Áætlað er að kostnaður við framkvæmdirnar verði um kr. 55.000.000. Lagt til að viðhaldsliður Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. í deild 37-111 verði hækkaður um kr. 55.000.000 í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2016. Enn fremur er lagt til að fjármagna þennan aukna rekstrarkostnað af eigin fé Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. og mun viðskiptastaða félagsins við Aðalsjóð breytast sem því nemur.
Handbært fé aðalsjóðs mun lækka um kr. 55.000.000 til samræmis við ofangreint og verða kr. 308.013.000 í árslok 2016.
Bæjarráð hefur samþykkt að semja beint við verktaka þar sem tími er naumur og framboð á vinnuafli lítið.
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Bæjarstjórn samþykkir viðauki nr. 1 vegna ársins 2016 með 8 atkvæðum.