740 Deiliskipulag miðbæjar Neskaupstaðar - breyting innan íþróttasvæðis
Mál 1605098 Fyrst á dagskrá 15. júní 2016, síðast 23. júní 2016. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og NorðfjörðurÍþróttir og tómstundirSkipulag
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 147 liður 7
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar þar sem gert er ráð fyrir vallarhúsi ofan íþróttavallar, skipulagsuppdráttur með greinargerð dagsettur 6. júní 2016.
Grenndarkynningu er lokið með samþykki nágranna.
Málsmeðferð verði í samræmi við 43. gr. skipulagslaga.
Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 203 liður 10
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar þar sem gert er ráð fyrir vallarhúsi ofan íþróttavallar sbr. skipulagsuppdrátt með greinargerð dagsettur 6. júní 2016.
Grenndarkynningu er lokið með samþykki nágranna.
Málsmeðferð verði í samræmi við 43. gr. skipulagslaga.
-
Bæjarstjórn, fundur 203 liður 2.7
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 147“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.