Aðstaða til líkamsræktunar - bréf frá íbúum Breiðabliks
Mál 1611102 Fyrst á dagskrá 6. desember 2016, síðast 15. desember 2016. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Félagsmálanefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Félagsmálanefnd, fundur 90 liður 1
Borist hefur bréf frá íbúum Breiðabliks á Norðfirði þar sem óskað er eftir að herbergi sem notað hefur verið fyrir geymslu verði nýtt undir líkamsræktartæki. Íbúar vilja með þessu stuðla að heilsusamlegra líferni og bættum lífsgæðum. Íbúarnir hyggjast sjálfir safna fyrir tækjunum. Deildarstjóri búsetuþjónustu gerði grein fyrir aðstöðunni og lagði til að vel yrði tekið í frumkvæði íbúanna og lagði til að herbergið verði tæmt svo hægt verði að útbúa þar aðstöðu fyrir líkamsrækt. Félagsmálanefnd samþykkir beiðnina með því skilyrði að íbúarnir eigi og annist þann búnað sem komið verður upp og taki ábyrgð á starfseminni.
-
Bæjarráð, fundur 501 liður 7
Félagsmálanefnd hefur samþykkt beiðni íbúa í Breiðabliki um aðstöðu til líkamsræktar, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Bæjarráð vísar til fjölskyldusviðs frekari vinnu við dagvist aldraðra í Breiðabliki, í tengslum við samþykkt þessa.
-
Bæjarráð, fundur 501 liður 21.1
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 90“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 213 liður 2.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 501“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 213 liður 9.1
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 90“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.