Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins
Mál 1611128 Fyrst á dagskrá 5. desember 2016, síðast 15. desember 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 500 liður 14
Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins er pólitískur samstarfsvettvangur evrópskra sveitarfélaga og svæða. Ísland á þrjá fulltrúa á þinginu sem stjórn sambandsins tilnefnir til fjögurra ára í senn.
Framlögð kynning á þinginu og helstu málum sem það fjallaði um á haustþingi sínu í október sl., svo sem aðgerðir til að berjast gegn spillingu á sveitarstjórnarstigi og öfgahyggju meðal íbúa, kynjaða fjárhagsáætlunargerð og hvernig sé hægt að auka þátttöku kvenna í sveitarstjórnarmálum.
-
Bæjarstjórn, fundur 213 liður 1.14
Fundargerðin „Bæjarráð - 500“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.