NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 161
18. nóvember 2016, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 499 liður 12
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 161 frá 21.nóvember 2016, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 212 liður 3
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Sævar Guðjónsson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 161 frá 21.nóvember 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Hænsnahald - drög að samþykkt
Mál 1609078 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri leggur fyrir fundinn drög að samþykkt um fiðurfé í Fjarðabyggð. Unnið var að samþykktinni í samstarfi við Heilbrigðiseftirliti Austurlands sem er eftirlitsaðili á ákvæðum samþykktarinnar sé framfylgt.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að vinna áfram að samþykkt um fiðurfé í samræmi við umræður á fundinum.
-
2. NOTE - Northern Periphery and Artic Programme 2014-2020
Mál 1611076 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri kynnti fyrir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd erindi frá dr. Sigríði Kristjánsdóttur, lektor í skipulagsfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands, þar sem hún óskaði eftir samstarfi við Fjarðabyggð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að taka þátt í verkefninu með vinnuframlagi allt að 40 klst á ári, tengiliðir við verkefnið verða Anna Berg Samúelsdóttir umhverfisstjóri og Helga Guðrún Jónasdóttir atvinnu- og þróunarstjóri.
-
3. Stjórnunar- og verndaráætlun,náttúruvættið Helgustaða, friðlandið og fólkvangurinn Hólmanes
Mál 1605163 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri kynnti drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Hólmanes friðland og fólkvang. Kynningarfrestur á þessum drögum er til 29. desember nk. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti og felur umhverfisstjóra að láta auglýsa þau til umsaganar á vef Fjarðabyggðar.
-
4. Ársfundur náttúruverndarnefnda og umhverfisstofnunar 2016
Mál 1610112 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri sagði frá ferð sinni á ársfund Umhverfisstofunnar, náttúruverndarnefndar sveitarfélaga og forstöðumanna náttúrustofa. Einnig kynnti umhverfisstjóri málefni sem var rætt á ársfundi sem snýr að umsjónaraðila friðlýstrasvæða og Umhverfisstofunar.
-
5. 750 Skólavegur 12 - endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 1610114 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Heimis Hjálmarssonar, Hjálmars Heimissonar og Kristínar Hönnu Hauksdóttur, dagsett 11. október 2016, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar þeirra að Skólavegi 12 á Fáskrúðsfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað.
-
6. 750 Skólavegur 14 - endurnýjun á lóðasamningi
Mál 1609104 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Alberts Kemp, dagsett 13. september 2016, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Skólavegi 14 á Fáskrúðsfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði. Lagt fram bréf KRST lögmanna, dagsett 14. nóvember 2016, vegna lóðarmála Skólavegar 14.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað.
-
7. 740 Blómsturvellir 3 - endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 1609095 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Sæþórs Sigursteinssonar, dagsett 12. september 2016, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Blómsturvöllum 3 á Norðfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað.
-
8. 740 Blómsturvellir 5 - endurnýjun á lóðarleigusamning
Mál 1610082 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Kristínar Hávarðardóttur og Ásgeirs Jónssonar, dagsett 11. október 2016, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar þeirra að Blómsturvöllum 5 á Norðfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað.
-
9. 735 Strandgata 78 - Byggingarleyfi, breytt notkun
Mál 1610126 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Emils K Thoarensen fh. Ábata ehf, dagsett 17. október 2016, þar sem óskað er eftir heimild til að breyta Strandgötu 78 á Eskifirði fyrir hótel og gistiaðstöðu. Strandgata 78 er innan reits Í9/A6 samkvæmt aðalskipulagi. Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 24. október 2016. Lögð fram umsögn Veðurstofu Íslands vegna endurskoðunar á hættumati við Hlíðarendaá.
Að fenginni umsögn Veðursstofu Íslands telur eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd að hótel og gistiaðstaða samræmist skipulagsskilmálum svæðisins og legst ekki gegn breyttri notkun.
-
10. Ofanflóðavarnir,frumathugun - Urðabotn, Nes- og Bakkagil
Mál 1501177 Allur ferill málsins
Erindi skipulagsstofnunar um frumathugun fyrir ofanflóðaframkvæmdir í Nes- og Bakkagili sem og Urðabotna og Sniðgil, lagt fram til kynningar.
-
11. Ályktun frá aðalfundi KFF um málefni Eskjuvallar
Mál 1611048 Allur ferill málsins
Erindi frá Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar er varaðar uppbyggingaráætlun fyrir knattspyrnuleikvöll á Eskifirði vísað frá íþrótta- og tómstundarnefnd.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar erindið og mun taka það til umfjöllunar á næstunni.
-
12. Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 2.nóvember
Mál 1610068 Allur ferill málsins
Fundargerð aðalfundar heilbrigðisnefnd Austurlands lögð fram til kynningar.