Ályktun frá aðalfundi KFF um málefni Eskjuvallar
Mál 1611048 Fyrst á dagskrá 18. nóvember 2016, síðast 6. apríl 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 161 liður 11
Erindi frá Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar er varaðar uppbyggingaráætlun fyrir knattspyrnuleikvöll á Eskifirði vísað frá íþrótta- og tómstundarnefnd.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar erindið og mun taka það til umfjöllunar á næstunni.
-
Bæjarstjórn, fundur 212 liður 3.11
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 161“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 171 liður 17
Aðalfundur Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar haldinn á Reyðafirði 6.október 2016 skorar á Fjarðabyggð að koma að gerð uppbyggingaráætlunar fyrir aðalleikvöll til knattspyrnuiðkunar á Eskifirði fyrir komandi fjárhagsáætlun sveitarfélagsins með knattspyrnufélagi Fjarðabyggðar, þar sem fram kæmi hvernig sveitarfélagið hyggst byggja upp boðlegan völl til knattspyrnu.
Lesa alla bókunina (136 orð til viðbótar)
Íþrótta- og tómstundafulltrúi hefur rætt við forsvarsmenn KFF og þeir telja mikilvægt að það sé gerð áætlun um hvenær og hvernig ráðist verður í umbætur á vellinum. Félagið myndi huga vinnu sinni við völlinn mismunandi eftir því hvort ráðist verði í þær framkvæmdir eftir 1, 3 eða 10 ár og því nauðsynlegt að félagið sé upplýst og að sveitarfélagið sé með einhverja áætlun í gangi. Í ár væri t.d. frábær tími til að taka völlinn í gegn þar sem liðið spilar í 2. deildinni, en liðið mætti þá spila alla sína leiki á Norðfjarðarvelli. Líklegast þarf að hækka völlinn um 70-120 cm auk þess sem það þarf að taka ákvörðun um hvort gerður verði þar gervisgrasvöllur í fullri stærð eða farið í umbætur á grasinu.
Eigna-, skipulags- og umhvefisnefnd þakkar erindið og mun skoða þessi mál.
-
Bæjarstjórn, fundur 220 liður 6.17
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 171“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.