Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu
Mál 1608047 Fyrst á dagskrá 14. nóvember 2016, síðast 1. desember 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Íþróttir og tómstundir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 497 liður 13
Frá fundi íþrótta- og tómstundanefndar 10. nóvember s.l.
Íþrótta- og tómstundanefnd hefur fundað með forsvarsmönnum allra íþróttafélaga í Fjarðabyggð sem reka sína eigin íþróttaaðstöðu.
Nefndin hefur samþykkt fyrir sitt leyti tillögu að skiptingu rekstrar- og uppbyggingarsamninga og vísar tillögunni til bæjarráðs.
Vísað til bæjarstjóra til skoðunar milli funda bæjarráðs og verða samningar teknir fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
-
Bæjarstjórn, fundur 211 liður 2.13
Fundargerðin „Bæjarráð - 497“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 498 liður 5
Frá fundi íþrótta- og tómstundanefndar 10. nóvember sl.
Íþrótta- og tómstundanefnd hefur fundað með forsvarsmönnum allra íþróttafélaga í Fjarðabyggð sem reka sína eigin íþróttaaðstöðu.
Nefndin hefur samþykkt fyrir sitt leyti tillögu að skiptingu rekstrar- og uppbyggingarsamninga og vísar tillögunni til bæjarráðs.
Lagðir eru fram núgildandi sjö samningar við Golfklúbbinn Byggðarholt, Golfklúbb Norðfjarðar, Golfklúbb Fjarðabyggðar, Hestamannafélagið Blæ, Skotíþróttafélagið Dreka, Vélhjóla- og íþróttafélag Fjarðabyggðar og Kajakklúbbinn Kaj. Bæjarráð samþykkir að samningar hækki um 2,5% á ári og að samningar gildi til þriggja ára. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningum.
-
Bæjarstjórn, fundur 212 liður 1.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 498“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.