Förgun á menguðum jarðvegi
Mál 1005017 Fyrst á dagskrá 19. maí 2010, síðast 13. október 2016. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, Mannvirkjanefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2010
Mannvirkjanefnd, fundur 33 liður 4
Lagt fram til kynningar bréf dagsett 4. apríl unnið af Mannvit hf. fyrir mannvirkjasvið til umhverfisstofnunar, þar sem sótt er um leyfi til að koma menguðum jarðvegi fyrir í Þernunesi í lokaðri gryfju. Umhverfisstofnun hafnar beiðni Fjarðabyggðar í bréfi dagsettu 29. apríl. Ástæða höfnunarinnar er að umræddur jarðvegur er flokkaður sem spilliefni samkvæmt reglugerð nr. 184/2002 og í starfsleyfi fyrir urðunarstaðin í Þernunesi er ekki heimild til að urða spilliefni. Mannvirkjanefnd felur mannvirkjasviði að halda áfram með málið.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 155 liður 16
Mengaður jarðvegur af Neseyri hefur verið sendur til Noregs til förgunar samkvæmt tilmælum Haust.
-
Bæjarstjórn, fundur 208 liður 3.16
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 155“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.