750 Hlíðargata 56 - byggingarleyfi endurbætur úti og inni
Mál 1706087 Fyrst á dagskrá 19. júní 2017, síðast 22. júní 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 179 liður 9
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 16. júní 2017, þar sem sótt er um leyfi vegna endurbóta innan og utanhúss á eldri hluta Skólamiðstöðvarinnar á Fáskrúðsfirði. Helstu verkefni eru gólfhiti í plötur á jarðhæð, ílögn og gólfefni, frárennslislagnir og jarðvinna, endurnýjun á neysluvatnslögnum, klæðning á austur gafl, loftræsikerfi, endurnýjun lýsingar og brunavarna o. fl.
Aðalhönnuður er Efla hf.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
Bæjarstjórn, fundur 225 liður 4.9
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 179“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.