Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 5
Mál 1706039 Fyrst á dagskrá 9. júní 2017, síðast 22. júní 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Bæjarráð, fundur 524 liður 2
Framlagður viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar. Viðaukinn er til samantektar á afgreiðslu bæjarráðs um viðhald á skólahúsnæði og leiðréttingar á viðauka 2 og upphaflegri fjárhagsáætlun ársins 2017. Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 5 með breytingum sbr. 5.fundarlið. Viðauka nr. 5 vísað til samþykktar í bæjarstjórn.
-
Bæjarstjórn, fundur 225 liður 11
Framlagður viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar. Viðaukinn er til samantektar á afgreiðslum bæjarráðs um viðhald á skólahúsnæði og leiðréttingar á viðauka 2 og upphaflegri fjárhagsáætlun ársins 2017 auk stefnumörkunar í fiskeldismálum. Bæjarráð hefur samþykkt viðaukabreytinguna. Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.
Fjárfestingar Tækjamiðstöðvar í málaflokki 36-010 hækka sem nemur kr. 1.000.000 og nema í heildina kr. 52.000.000 og viðskiptastaða Tækjamiðstöðvarinnar við Aðalsjóð lækkar sem því nemur.
Lesa alla bókunina (148 orð til viðbótar)
Fjárfestingar Eignarhaldsfélagsins Hrauns í málaflokki 38-010 hækka sem nemur kr. 12.000.000 en engar fjárfestingar voru fyrirhugaðar í félaginu, einnig munu viðhaldsliðir í málaflokki 37-101, 37-103 og 37-202 hækka um kr. 12.500.000 frá áætlun ársins og viðskiptastaða Eignarhaldsfélagsins Hrauns við aðalsjóð lækka sem þessu nemur eða samtals um kr. 24.500.000.
Fjárfestingar Eignasjóði í málaflokki 32-010 lækka sem nemur kr. 16.000.000 og verða kr. 188.000.000 í stað kr. 204.000.000, einnig munu viðhaldsliðir í málaflokki 31-102, 31-116 og 31-524 hækka samtals um kr. 1.700.000 og viðskiptastaða Eignasjóðs við Aðalsjóðs hækka sem þessu nemur eða samtals um kr. 14.300.000.
Rekstrarkostnaður vegna kaupa á sérfræðiþjónustu við Skipulags- og byggingarmál 09-220 hækkar sem nemur kr. 5.000.000 og greiðist af eigin fé Aðalsjóðs.
Handbært fé Aðalsjóðs mun lækka um 16.200 þúsund krónur til samræmis við ofangreint og verða 92.638 þúsund krónur í árslok 2017.
Enginn tók til máls.
Viðauki nr. 5 samþykktur með 9 atkvæðum.
-
Bæjarstjórn, fundur 225 liður 1.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 524“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.