Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 525

19. júní 2017, kl. 09:00 til 11:40, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 225 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 524 og nr. 525 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jens Garðar Helgason.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 525 frá 19.júní 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fasteignamat 2018

    Mál 1706055 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar samantekt fjármálastjóra um breytingar á fasteignamati í Fjarðabyggð á milli áranna 2017 og 2018. Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  2. 2. Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2017

    Mál 1706057 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri leggur fram drög að umsókn til Ofanflóðasjóðs vegna umsóknar um lán vegna ofanflóðaframkvæmda á árinu 2016. Lántakan, ef af verður, er í samræmi við fjárhagsáætlun ársins 2017. Bæjarráð samþykkir umsóknina og felur fjármálastjóra afgreiðslu málsins.

  3. 3. Kaup sveitarfélaga á fasteignum í eigu Íbúðalánasjóðs

    Mál 1510071 Allur ferill málsins

    Íbúðalánasjóður leitar til sveitarfélaga á landinu með það í huga að bjóða til viðræðna um möguleg kaup á fasteignum í eigu sjóðsins. Lagt fram til kynningar og vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar. Bæjarstjóra falið að ræða við Íbúalánasjóð um sölu eignanna á almennum markaði.

  4. 4. Húsnæðisáætlun sveitarfélaga

    Mál 1705231 Allur ferill málsins

    Fundargerð fundar um gerð sameiginlegrar húsnæðisáætlunar fyrir Austurland .Samþykkt hefur verið að stofna starfshóp á vegum SSA og er bæjarstjóri fulltrúi bæjarins í hópnum. Fyrsti fundur verður haldinn þriðjudaginn 20.júní kl. 11.30 á Egilsstöðum.

  5. 5. Ferða- og markaðsmál

    Mál 1705166 Allur ferill málsins

    Lagt fram og rætt minnisblað upplýsinga- og kynningarfulltrúa og atvinnu- og þróunarstjóra um þjónustu Fjarðabyggðar og ferðaþjónustuaðila gagnvart ferðamönnum sem sækja Fjarðabyggð heim, m.a. þjónustu á tjaldsvæðum, opnunartíma stofnana og safna, afþreyingu o.fl. Minnisblaði vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, menningar- og safnanefndar og íþrótta- og tómstundanefndar.

  6. 6. Stefnumótun í fiskeldismálum

    Mál 1703120 Allur ferill málsins

    Minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra um stefnu Fjarðabyggðar í fiskeldismálum ásamt skjali með stefnuþáttum. Bæjarráð samþykkir efni minnisblaðsins. Fjármögnun, allt að 5 milljónir, vísað til fjármálastjóra til viðaukagerðar sem lagður verði fram á fundi bæjarstjórnar 22.júní. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  7. 7. 408.mál til laga um skipulag haf- og strandsvæða,

    Mál 1705137 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að umsögn bæjarstjóra og umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30.maí, um frumvarp um skipulag haf- og strandsvæða. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá umsögn á grundvelli draga og leggja fyrir bæjarstjórn.

  8. 8. Samstarf í menntamálum

    Mál 1610097 Allur ferill málsins

    Lögð fram gögn bæjarstjóra er varða uppbyggingu og samstarf í menntamálum auk draga að yfirlýsingu um samstarf milli Fjarðabyggðar og nokkurra fyrirtækja um nám á háskólastigi. Bæjarráð samþykkir samtarf og fjármögnun, allt að 4 milljónir, verði tekin af liðnum óráðstafað. Vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn og jafnframt til kynningar í fræðslunefnd.

  9. 9. Fræðslunefnd - 42

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 42 frá 14.júní 2017, lögð fram til kynningar.

    1. 9.1 Fundaáætlun fræðslunefndar haust 20171705199
    2. 9.2 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
    3. 9.3 Viðbyggingaþörf við leikskóla á Eskifirði og Reyðarfirði1611044
    4. 9.4 Áskorun til fræðsluyfirvalda vegna nemenda með skilgreinda fötlun1705203
    5. 9.5 Tölvuver grunnskólanna í Fjarðabyggð1705239
    6. 9.6 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20181705194
    7. 9.7 Útboð á skólamáltíðum í grunnskólum 20171612093
  10. 10. Íþrótta- og tómstundanefnd - 36

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 36 frá 8.júní 2017, lögð fram til kynningar.

    1. 10.1 Heimsókn í íþrótta- og tómstundamannvirki á Reyðarfirði
    2. 10.2 Ástandsskýrsla - Íþróttahús Eskifjarðar
    3. 10.3 Úthlutunarreglur íþróttastyrkja uppfærðar 2017
    4. 10.4 Starfs- og fjárhagsáætlun 2018 íþrótta- og tómstundanefnd