Fræðslunefnd, fundur 44
6. september 2017, kl. 16:30 til 19:15, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, formaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Kjartan Glúmur Kjartansson, aðalmaður
- Guðlaug Dana Andrésdóttir, varaformaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 533 liður 10
Bæjarstjórn, fundur 228 liður 6
Fundargerðir fræðslunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð fræðslunefndar frá 6.september s.l. samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Heimsókn skólastjóra til fræðslunefndar haustið 2017
Mál 1709007 Allur ferill málsins
Skólastjórar leikskólanna Eyrarvalla, Dalborgar og Lyngholts og skólastjóri Stöðvarfjarðarskóla mættu á fund fræðslunefndar. Skólastjórarnir gerðu grein fyrir skólastarfinu og svöruðu spurningum varðandi skólastarfið. Fræðslunefnd þakkar skólastjórum fyrir greinargóðar upplýsingar.
-
2. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Fræðslunefnd
Mál 1709028 Allur ferill málsins
Rætt var um vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2018. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.