Fræðslunefnd, fundur 47
6. október 2017, kl. 16:30 til 17:30, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, formaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Kjartan Glúmur Kjartansson, aðalmaður
- Guðlaug Dana Andrésdóttir, varaformaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 538 liður 29
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 47 frá 11.október, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 230 liður 5
Til máls tóku Pálína Margeirsdóttir og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 47 frá 11.október 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Gjaldskrá tónlistarskóla 2018
Mál 1709214 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd skoðaði gjaldskrá tónlistarskólanna í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrá viðmiðunarsveitarfélaga. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar.
-
2. Gjaldskrá leikskóla 2018
Mál 1709213 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd skoðaði gjaldskrá leikskólanna í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrá viðmiðunarsveitarfélaga og úttekt ASÍ á 15 stærstu sveitarfélögum landsins fyrir árið 2017. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar.
-
3. Gjaldskrá skólamats í grunnskólum 2018
Mál 1710065 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd skoðaði gjaldskrá á skólamáltíðum í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrá viðmiðunarsveitarfélaga fyrir árið 2017. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar.
-
4. Gjaldskrá skóladagheimila 2018
Mál 1709212 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd fór yfir gjaldskrá frístundar (skóladagheimila) í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrár viðmiðunarsveitarfélaga. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar.
-
5. Gjaldskrá grunnskóla 2018
Mál 1709211 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd fór yfir gjaldskrá grunnskóla í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrár viðmiðunarsveitarfélaga fyrir árið 2017. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar.
-
6. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Fræðslunefnd
Mál 1709028 Allur ferill málsins
Farið var yfir fjárhagsáætlun í fræðslumálum og hún borin saman við úthlutaðan fjárhagsramma. Vitað var að töluverður munur yrði á áætlun og úthlutuðum fjárhagsramma þar sem ramminn tók mið af fjölda og rekstri á árinu 2017. Fjölgun nemenda í bæði leik- og grunnskólum kallar á fleiri stöðugildi í skólunum. Nýr samningur um skólamáltíðir sem og samþykkt bæjarstjórnar vorið 2017 varðandi bókun 1 í kjarasamaningi LNS og FG eru atriði sem vitað var að myndi auka kostnað. Munur á fjárhagsáætlun og fjárheimildum er um 3,6%.
Einnig var farið yfir drög að starfsáætlun í fræðslumálum fyrir árið 2018. Fræðslustjóra er falið að ljúka við fjárhags- og starfsáætlun í takt við umræðu í nefndinni.
-
7. Viðbygging við leikskólann Lyngholt
Mál 1611029 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd ræddi um fyrirhugaða stækkun leikskólans Lyngholts á Reyðarfirði og hvernig bregðast megi við þeirri stöðu sem upp kemur um áramótin 2017-2018 þegar núverandi leikskólahúsnæði getur ekki lengur tekið á móti öllum börnum sem orðin eru 12 mánaða. Fræðslustjóri, leikskólastjóri og sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs hafa undanfarið skoðað möguleika á að koma fyrir lausri kennslustofu í námunda við skólann og skoða nýtingu á Félagslundi fyrir leikskóladeild. Það er álit fyrrnefndra aðila að erfitt sé að staðsetja lausa kennslustofu í námunda við skólann án þess að hún stæði í vegi fyrir framkvæmdum við viðbyggingu. Nýting á Félagslundi þykir vænlegri kostur og Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur gert úttekt á húsnæðinu og gert athugasemdir sem bregðast þarf við. Nú er unnið að því að kostnaðarmeta breytingar á húnæðinu og yfirfara á hvern hátt deild verði best komið fyrir í húsnæðinu. Fræðslunefnd leggur mikla áherslu á að flýta vinnunni þannig að áfram verði hægt að bjóða öllum börnum sem orðin eru 12 mánaða upp á leikskólavist.
-
8. Velferðarvaktin - Kostnaðarþátttaka vegna skólagagna
Mál 1710041 Allur ferill málsins
Lögð var fyrir skýrsla Velferðarvaktarinnar, þar sem farið er yfir kostnaðarþátttöku sveitarfélaga vegna skólanámsgagna. Fyrr í sumar samþykkti sveitarfélagið Fjarðabyggð að veita öllum nemendum ókeypis námsgögn. Framkvæmdin gekk mjög vel í grunnskólum sveitarfélagsins og mikil ánægja með ákvörðunina. Lagt fram til kynningar
-
9. Málefni nemenda
Mál 1710066 Allur ferill málsins
Fært í trúnaðarmálabók.