Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 538

16. október 2017, kl. 08:30 til 11:20, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 230 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 537 og 538 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson og Valdimar O. Hermannsson og Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 538 frá 16.október 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fyrirspurnir til bæjarráðs og bæjarstjórnar

    Mál 1710030 Allur ferill málsins

    Fyrirspurn Agnars Bóassonar er varðar aðkeypta þjónustu sveitarfélagsins og búsetu starfsmanna þess. Lögð fram drög að svari bæjarstjóra. Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara Agnari á grundvelli framlagðra draga.

  2. 2. 740 Gilsbakki 14 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 1709189 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Grétars Arnar Sigfinnssonar, dagsett 28. september 2017, þar sem óskað er eftir um 70 m2 stækkun til norðurs á lóð hans að Gilsbakka 14 á Norðfirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt stækkunina fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir stækkun lóðar.

  3. 3. Húsvarsla í Valhöll Eskifirði

    Mál 1705102 Allur ferill málsins

    Samningur við Vini Valhallar lagður fram til samþykktar. Bæjarráð samþykkir samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  4. 4. Kaup á fasteignum á Eskifirði vegna frummats ofanflóðavarna.

    Mál 1707111 Allur ferill málsins

    Samþykkt Ofanflóðasjóðs að mat fari fram á eignum - Kirkjustíg 7 og Strandgötu 45 Eskifirði. Lagt fram til kynningar og vísað til eigna-skipulags og umhverfisnefndar.

  5. 5. Heimildarmynd um snjóflóðið í Neskaupstað 1974

    Mál 1604118 Allur ferill málsins

    Ofanflóðasjóður hefur samþykkt að styrkja gerð heimildarmyndar um snjóflóðið í Neskaupstað 1974, um 1.000.000 kr. Lagt fram til kynningar.

  6. 6. Beiðni um styrkveitingu

    Mál 1709149 Allur ferill málsins

    Beiðni Neytendasamtakanna um styrk. Bæjarráð getur því miður ekki orðið við beiðni að þessu sinni.

  7. 7. Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 1.nóvember

    Mál 1710064 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands verður haldinn 1. nóvember á Vopnafirði. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð bæjarins á fundinum.

  8. 8. Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2017

    Mál 1709140 Allur ferill málsins

    Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

  9. 9. Ljósleiðaralagning 2018 - Ísland ljóstengt

    Mál 1710073 Allur ferill málsins

    Framlagðir skilmálar verkefnisins Ísland ljóstengt 2018 ásamt upplýsingum um umsóknarferlið sem er í tveim hlutum A og B. Vísað til sviðsstjóra veitusviðs til frekari vinnslu.

  10. 10. Byggðastyrkur til lagningar ljósleiðarakerfa í strjálbýlum sveitarfélögum 2018

    Mál 1710069 Allur ferill málsins

    Upplýsingar frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti um byggðastyrki til lagningar ljósleiðara í dreifbýli. Vísað til sviðsstjóra veitusviðs til frekari vinnslu.

  11. 11. Styrkur til uppbyggingar á ljósleiðarakerfi fyrir Fjarðabyggð

    Mál 1704064 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Vodafone um ljósleiðaralagningu og áhuga félagsins á að taka þátt í verkefnum sem tengjast uppbyggingu þeirra. Vísað til sviðsstjóra veitusviðs til frekari vinnslu.

  12. 12. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2017

    Mál 1702036 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnarfundar Náttúrustofu Austurlands, frá 12.september 2017, lögð fram til kynningar. Bæjarstjóra falið að hefja undirbúning að endurnýjun samnings við Náttúrstofu Austurlands að höfðu samráði við Fljótsdalshérað.

  13. 13. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018 ásamt langtímaáætlun

    Mál 1706013 Allur ferill málsins

    Á fundi Hafnarstjórnar Fjarðabyggðar þann 10. október 2017 var fjárhagsáætlun ársins 2018 ásamt langtímaáætlun samþykkt og vísað til bæjarráðs. Umfjöllun um fjárhagsáætlun hafnarsjóðs. Bæjarráð vísar áætlun til fjárhagsáætlunarvinnu.

  14. 14. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Menningar- og safnanefnd

    Mál 1709029 Allur ferill málsins

    Á fundi menningar- og safnanefndar 12.október voru lögð fram drög að starfsáætlun ársins 2018, sundurliðun á fjárhagsramma málaflokks menninarmála og drög að verkefnum og fjárhagsútgjöldum og styrkjum menningarstofu. Menningar- og safnanefnd samþykkti drög að starfsáætlun og vísaði til afgreiðslu bæjarráðs. Menningar- og safnanefnd telur að hækkun fjárhagsramma málaflokks menningarmála milli áranna 2017 og 2018 taki ekki fyllilega tillit til þess að Menningarstofa Fjarðabyggðar var sett á laggirnar á árinu. Nefndin leggur því til við bæjarráð að fjárheimildir málaflokksins verði endurskoðaðar með þetta í huga. Umfjöllun um fjárhagsáætlun menningarmála. Bæjarráð vísar áætlun til fjárhagsáætlunarvinnu.

  15. 15. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Fræðslunefnd

    Mál 1709028 Allur ferill málsins

    Starfs- og fjárhagáætlun fræðslumála lögð fram til samþykktar í bæjarráði. Umfjöllun um fjárhagsáætlun fræðslumála. Bæjarráð vísar áætlun til fjárhagsáætlunarvinnu.

  16. 16. Starfs- og fjárhagsáætlun 2018 íþrótta- og tómstundanefnd

    Mál 1706018 Allur ferill málsins

    Starfs- og fjárhagáætlun íþrótta- og tómstundamála lögð fram til samþykktar í bæjarráði. Umfjöllun um fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundamála. Bæjarráð vísar áætlun til fjárhagsáætlunarvinnu.

  17. 17. Gjaldskrá í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar 2018

    Mál 1709208 Allur ferill málsins

    Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir íþróttamannvirki fyrir árið 2018 og vísar þeim til bæjarráðs. Heilt yfir hækkar gjaldskráin um 2,7%. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  18. 18. Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2018

    Mál 1709209 Allur ferill málsins

    Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti gjaldskrá fyrir líkamsræktarstöðvar fyrir árið 2018 og vísar málinu til bæjarráðs. Heilt yfir hækkar gjaldskráin um 2,7%. Auk þess leggur íþrótta- og tómstundanefnd til við bæjarráð, að Fjarðabyggð gefi eldri borgurum búsettum í sveitarfélaginu frían aðgang í líkamsrætarstöðvar sínar utan álagstíma. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  19. 19. Gjaldskrá tónlistarskóla 2018

    Mál 1709214 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd skoðaði gjaldskrá tónlistarskólanna í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrá viðmiðunarsveitarfélaga. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar. Gjaldskrá vísað til bæjarráðs til samþykktar. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  20. 20. Gjaldskrá leikskóla 2018

    Mál 1709213 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd skoðaði gjaldskrá leikskólanna í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrá viðmiðunarsveitarfélaga og úttekt ASÍ á 15 stærstu sveitarfélögum landsins fyrir árið 2017. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar. Gjaldskrá er vísað til samþykktar í bæjarráði. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  21. 21. Gjaldskrá skólamats í grunnskólum 2018

    Mál 1710065 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd skoðaði gjaldskrá á skólamáltíðum í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrá viðmiðunarsveitarfélaga fyrir árið 2017. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar. Gjaldskrá vísað til samþykktar í bæjarráði. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  22. 22. Gjaldskrá skóladagheimila 2018

    Mál 1709212 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd fór yfir gjaldskrá frístundaheimila (skóladagheimila) í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrár viðmiðunarsveitarfélaga. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar. Gjaldskrá vísað til samþykktar í bæjarráði. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  23. 23. Gjaldskrá grunnskóla 2018

    Mál 1709211 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd fór yfir gjaldskrá grunnskóla í Fjarðabyggð og bar hana saman við gjaldskrár viðmiðunarsveitarfélaga fyrir árið 2017. Fjárhagsrammi fræðslunefndar gerir ráð fyrir 2,7% hækkun á gjaldskrá frá 1. janúar 2018 miðað við verðlagsspá og það er jafnframt tillaga nefndarinnar. Gjaldskrá vísað til bæjarráðs til samþykktar. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  24. 24. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 187

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 187 frá 9.október, lögð fram til kynningar.

    1. 24.1 Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar - TRÚNAÐARMÁL1611104
    2. 24.2 Gæðahandbók Vatnsveitu1709177
    3. 24.3 Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES1411143
    4. 24.4 Refa- og minkaveiði fyrirkomulag 20171701232
    5. 24.5 740 Framkvæmdaleyfi - Lagfæring vegar frá Viðfirði að Merkihrygg1708123
    6. 24.6 Tjaldsvæði Fjarðabyggð 20171612066
    7. 24.7 750 Álfabrekka 6 byggingarleyfi1710004
    8. 24.8 730 Stekkjarbrekka 6 byggingarleyfi1710003
    9. 24.9 750 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027,breyting - grjótnáma kappeyri1704081
    10. 24.10 750 Hafnargata 23 byggingarleyfi - niðurrif húss1710013
    11. 24.11 Suðurfirðir - Framkvæmdaleyfi, lagning ljósleiðara1710033
    12. 24.12 735 Krikjustígur 1.b - Byggingarleyfi - breyting inni1707040
    13. 24.13 750 Dalsá - Framkvæmdaleyfi, efnistaka1709161
    14. 24.14 740 Gilsbakki 14 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi1709189
    15. 24.15 715 Fjörður 1 - Krafa um að óleyfisframkvæmdir sé fjarlægðar1709192
    16. 24.16 Forsendubrestur í uppbyggingu hesthúsahverfis við Símonartún1704104
    17. 24.17 Stækkun lóðar við leikskólann Lyngholt1709188
    18. 24.18 Stefna í málefnum um plastnotkun1710038
    19. 24.19 Tjaldstæði Reyðarfirði1709178
  25. 25. Hafnarstjórn - 185

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 185 frá 10.október, lögð fram til kynningar.

    1. 25.1 Fundargerðir Hafnasamband Íslands 20171701008
    2. 25.2 Rannsóknarnefnd samgönguslysa - hafnakantar1710008
    3. 25.3 Fundargerðir CI á árinu 20171701009
    4. 25.4 Endurbygging/endurnýjun stálþila vegna tæringar1710016
    5. 25.5 Innkaupareglur Fjarðabyggðar - endurskoðun 20171705245
    6. 25.6 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018 ásamt langtímaáætlun1706013
    7. 25.7 Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 20181706041
    8. 25.8 Innviðir á Íslandi - ástand og framtíðarhorfur1710025
  26. 26. Félagsmálanefnd - 99

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 99 frá 9.október, lögð fram til kynningar.

    1. 26.1 Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar - TRÚNAÐARMÁL1611104
    2. 26.2 Gjaldskrá félagslegrar heimþjónustu 20181709210
    3. 26.3 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 20181709195
    4. 26.4 Gjaldskrá Fjölskyldusviðs 2018 vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn1709193
    5. 26.5 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Félagsmálanefnd1709026
  27. 27. Menningar- og safnanefnd - 35

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 35 frá 12.október, lögð fram til kynningar.

    1. 27.1 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Menningar- og safnanefnd
  28. 28. Íþrótta- og tómstundanefnd - 41

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 41 frá 12.október, lögð fram til kynningar.

    1. 28.1 Innkaupareglur Fjarðabyggðar - endurskoðun 2017
    2. 28.2 Verkaefnalisti fyrir Skíðamiðstöðina í Oddskarði
    3. 28.3 Vallarvinnusamningar 2018
    4. 28.4 Gjaldskrá líkamsrækatarstöðva 2018
    5. 28.5 Gjaldskrá í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar 2018
    6. 28.6 Starfs- og fjárhagsáætlun 2018 íþrótta- og tómstundanefnd
  29. 29. Fræðslunefnd - 47

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 47 frá 11.október, lögð fram til kynningar.

    1. 29.1 Gjaldskrá tónlistarskóla 20181709214
    2. 29.2 Gjaldskrá leikskóla 20181709213
    3. 29.3 Gjaldskrá skólamats í grunnskólum 20181710065
    4. 29.4 Gjaldskrá skóladagheimila 20181709212
    5. 29.5 Gjaldskrá grunnskóla 20181709211
    6. 29.6 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Fræðslunefnd1709028
    7. 29.7 Viðbygging við leikskólann Lyngholt1611029
    8. 29.8 Velferðarvaktin - Kostnaðarþátttaka vegna skólagagna1710041
    9. 29.9 Málefni nemenda1710066