Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Suðurfirðir - Framkvæmdaleyfi, lagning ljósleiðara

Mál 1710033 Fyrst á dagskrá 9. október 2017, síðast 19. október 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 187 liður 11

    Lögð fram framkvæmdarleyfisumsókn Fjarðabyggðar í samstarfi við Orkufjarskipti, dagsett 6. október 2017, vegna lagningar ljósleiðara frá Stöð í Stöðvarfirði að Áreyjum í Reyðarfirði. Fyrirhuguð lagnaleið liggur frá Óseyri með Suðurfjarðarvegi um Fáskrúðsfjarðargöng til Áreyja í Reyðarfirði. Samþykki landeigenda liggur fyrir ásamt jákvæðum umsögnum Vegagerðar, Fiskistofu, Veiðifélags Dalsár og Minjastofnunnar Íslands. Fornleifaskráning hefur verið gerð fyrir lagnaleiðina. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í október 2017 og klárist fyrir áramót. Gert er ráð fyrir tengingu 14 lögbýla.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  2. Bæjarráð, fundur 538 liður 24.11

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 187“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 230 liður 3.11

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 187“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is