740 Framkvæmdaleyfi - Lagfæring vegar frá Viðfirði að Merkihrygg
Mál 1708123 Fyrst á dagskrá 4. september 2017, síðast 19. október 2017. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 184 liður 5
Lögð fram framkvæmdarleyfisumsókn Barðsness við Norðfjörð ehf, dagsett 21. júlí 2017, vegna lagfæringar á vegslóða frá Viðfirði út fyrir Merkihrygg á um 3,5 km. kafla að landamerkjum Stuðla. Umsóknin var kynnt á 182. fundi nefndarinnar. Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 24. ágúst 2017, um reit O7/N4/Hv3 innan aðalskipulags og fyrirhugaða vegagerð innan reitsins. Lagt fram bréf fh. landeiganda Gerðis og Stuðla, dagsett 1. september, þar sem ekki er gerð athugasemd við að vegslóðinn verði lagfærður að Merkihrygg. Samþykki landeiganda Viðfjarðar vegna vegagerðarinnar liggur fyrir ásamt jákvæðri umsögn Umhverfisstofnunar. Umsögn Skipulagsstofnunar og Minjastofnunar Íslands vegna framkvæmdarinnar hefur ekki borist.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu þar til umsagnir liggja fyrir.
-
Bæjarstjórn, fundur 228 liður 3.5
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 184“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 187 liður 5
Lögð fram framkvæmdarleyfisumsókn Barðsness við Norðfjörð ehf, dagsett 21. júlí 2017, vegna lagfæringar á vegslóða frá Viðfirði út fyrir Merkihrygg á um 3,5 km. kafla að landamerkjum Stuðla. Umsóknin var kynnt á 182. fundi og afgreiðslu frestað á 184. fundi nefndarinnar. Samþykki landeiganda Viðfjarðar vegna vegagerðarinnar liggur fyrir ásamt jákvæðri umsögn Umhverfisstofnunar og Minjastofnunar Íslands.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir. Nefndin leggur áherslu á að gengið verði vel um náttúruna og raski haldið í lágmarki
-
Bæjarráð, fundur 538 liður 24.5
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 187“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 230 liður 3.5
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 187“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.