Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

715 Fjörður 1 - Krafa um að óleyfisframkvæmdir sé fjarlægðar

Mál 1709192 Fyrst á dagskrá 9. október 2017, síðast 16. nóvember 2017. 6 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í hnotskurn

Málið snýst um kröfu um að rafstöðvarhús, geymsluhús og vegur í landi Fjarðar 1 í Mjóafirði, sem reist voru án leyfis, verði fjarlægð1. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að eigendum verði gert að fjarlægja mannvirkin og bæjarstjórn hefur staðfest þá ákvörðun456.

Staðan

Eigendur hafa frest til loka júlí 2018 til að fjarlægja mannvirkin, en að þeim tíma liðnum falla á þá dagsektir að fjárhæð 25.000 kr., og eftir 1. ágúst 2018 er byggingar- og skipulagsfulltrúa heimilt að láta vinna verkið á kostnað eigenda4.

Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 187 liður 15

    Lagt var fram erindi lögmanns þar sem krafist er að framkvæmdir án leyfis í Firði verði fjarlægðar, og nefndin ákvað að fresta málinu ekki frekar heldur tilkynna eigendum að hún hygðist afgreiða tillögur um mannvirkin, með tveggja vikna fresti til viðbótarandmæla.

    Endursögn gervigreindar

    Lagt er fram erindi lögmanns Kötlu Þorsteinsdóttur, dags. 26. september 2017, vegna umdeildra framkvæmda í Firði. Í bréfinu er gerð krafa um að þar til bær aðili innan Fjarðabyggðar hlutist til um að óleyfisframkvæmdir í Firði verði fjarlægðar. Þá er lagt fram minnisblað þar sem fjallað er um aðkomu Fjarðabyggðar að samningaumleitunum sameigenda Fjarðar um afmörkun lóðar og gerð lóðarsamnings og stöðu málsins.

    Lesa alla bókunina (157 orð til viðbótar)

    Með bréfum til eigenda mannvirkja, dags. 13. nóvember 2015, var tilkynnt um ráðgerða málsmeðferð varðandi óleyfisframkvæmdir, nánar tiltekið rafstöðvarhús og geymsluhús vegna Fjarðar 1 og vegar í landi Fjarðar. Andmæli liggja fyrir, sbr. bréf Veritas lögmanna, dags. 20. nóvember 2015. Afgreiðslu málsins hefur ítrekað verið frestað vegna umleitana um frágang lóðarréttinda Fjarðar 1 og viðræðna málsaðila.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur ekki ástæðu til að fresta afgreiðslu málanna frekar og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna um að nefndin hyggist taka til umfjöllunar og afgreiðslu tillögur um ofangreind mannvirki, sbr. nánari lýsingu tillagna í bréfi, dags. 13. nóvember 2015. Við ákvörðun fresta sem vísað er til í bréfinu verður tekið tillit til þess að erfitt er um vik að standa að framkvæmdum í Mjóafirði yfir vetrarmánuði. Upphaf dagsekta og réttur Fjarðabyggðar til framkvæmda á kostnað eiganda mannvirkja, verður því miðaður við 1. ágúst 2018. Eigendum mannvirkja skal veittur 2ja vikna frestur til að setja fram viðbótar andmæli.

  2. Bæjarráð, fundur 538 liður 24.15

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 187“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 230 liður 3.15

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 187“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 190 liður 8

    Lagt var fram bréf lögmanns húseiganda með andmælum, og nefndin samþykkti að eigendum yrði gert að fjarlægja rafstöðvarhús, geymslubyggingu og veg og afmá jarðrask, að viðlögðum dagsektum.

    Endursögn gervigreindar

    Lagt fram bréf lögmanns húseiganda Fjarðar 1 í Mjófirði, dagsett 25. október 2017, þar sem kröfum um að mannvirki verði fjarlægð er mótmælt. Jafnframt er vísað í fyrri andmæli vegna málsins.

    Lesa alla bókunina (315 orð til viðbótar)

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að eigendum Fjarðar 1, lnr. 209836,fastanr. 217-6677 verði gert að fjarlægja rafstöðvarhús og geymslubyggingu við Fjörð 1 og að afmá jarðrask vegna bygginganna, sbr. 55. og 56. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Með afmáningu jarðrasks er vísað til þess að öll nýleg byggingarefni verði fjarlægð, en eldri ummerki húsatótta geti staðið, sbr. geymsluhúsið.

    Frestur til að vinna verkið er til loka júlí 2018. Með vísan til 2. mgr. 56. gr. mannvirkjalaga skulu dagsektir að fjárhæð kr. 25.000,-, falla á eigendur mannvirkjanna hafi þær lagfæringar sem krafist er, ekki farið fram innan þess tíma. Þá verði byggingarfulltrúa veitt heimild til að láta vinna umræddar framkvæmdir á kostnað eigenda mannvirkja, eftir 1. ágúst 2018, sbr. 3. mgr. 56. gr. mannvirkjalaga.

    Dagsektir og kostnað vegna aðgerða á vegum byggingarfulltrúa má innheimta með fjárnámi og hefur sveitarfélagið Fjarðabyggð lögveð fyrir kröfu sinni í eignarhluta eigenda mannvirkja í jörðinni Firði 1, landnr. 158124.

    Nefndin samþykkir einnig að að eigendum Fjarðar 1, lnr. 209836,fastanr. 217-6677 verði gert að fjarlægja veg sem liggur frá Mjóafjarðarvegi að íbúðarhúsi Fjarðar 1 lóð og afmá jarðrask vegna hans, sbr. 53. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með afmáningu jarðrasks er vísað til þess að vegsvæði verði lækkað þannig að það liggi jafnhátt og land umhverfis veg. Jafnframt að malarefni verði flutt burt, þar sem því hefur verið jafnað út á gróið land.

    Frestur til að vinna verkið er til loka júlí 2018. Með vísan til 54. gr. skipulagslaga skulu dagsektir að fjárhæð kr. 25.000,-, falla á eigendur mannvirkja hafi þær lagfæringar sem krafist er ekki farið fram innan þess tíma. Þá verði skipulagsfulltrúa veitt heimild til að láta vinna umræddar framkvæmdir á kostnað eigenda mannvirkja, eftir 1. ágúst 2018, sbr. 54. gr. skipulagslaga.

    Dagsektir og kostnað vegna aðgerða á vegum skipulagsfulltrúa má innheimta með fjárnámi og hefur sveitarfélagið Fjarðabyggð lögveð fyrir kröfu sinni í eignarhluta eigenda mannvirkja í jörðinni Firði 1, landnr. 158124.

  5. Bæjarstjórn, fundur 232 liður 8

    Bæjarstjórn staðfesti með 9 atkvæðum ákvörðun nefndarinnar um að fjarlægja skuli veginn og afgreiddi fundargerð nefndarinnar þar sem málið var á dagskrá6.

    Endursögn gervigreindar

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir málinu.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd vísar til staðfestingar bæjarstjórnar, að eigendum Fjarðar 1, lnr. 209836,fastanr. 217-6677 verði gert að fjarlægja veg sem liggur frá Mjóafjarðarvegi að íbúðarhúsi Fjarðar 1 lóð og afmá jarðrask vegna hans, sbr. 53. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með afmáningu jarðrasks er vísað til þess að vegsvæði verði lækkað þannig að það liggi jafnhátt og land umhverfis veg. Jafnframt að malarefni verði flutt burt, þar sem því hefur verið jafnað út á gróið land.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum ákvörðun eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.

  6. Bæjarstjórn, fundur 232 liður 3.8

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 190“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is