Hafnarstjórn, fundur 185
10. október 2017, kl. 16:30 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 538 liður 25
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 185 frá 10.október, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 230 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 185 frá 10.október 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2017
Mál 1701008 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 397 dags. 20. september 2017. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
-
2. Rannsóknarnefnd samgönguslysa - hafnakantar
Mál 1710008 Allur ferill málsins
Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 2. október 2017 þar sem Hafnasambandið að beiðni Rannsóknanefndar samgönguslysa og Vegagerðarinnar, sendir bréf Vegagerðarinnar frá 19. júní 2017 um rannsókn banaslyss sem varð í byrjun árs 2016, til upplýsingar fyrir aðildarhafnir sambandsins. Erindið kynnt.
-
3. Fundargerðir CI á árinu 2017
Mál 1701009 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 2. október 2017 lögð fram til kynningar.
-
4. Endurbygging/endurnýjun stálþila vegna tæringar
Mál 1710016 Allur ferill málsins
Á fundi hafnarstjórnar Fjarðabyggðar þann 28. mars sl. var óskað eftir því að álits yrði leitað á mögulegum leiðum til úrbóta vegna tæringar á elstu stálþiljunum í Fjarðabyggð á Reyðafirði, Eskifirði og Norðfirði. Fyrir fundinum liggur minnisblað siglingasviðs Vegagerðarinnar dags. 29. september 2017 vegna málsins.
-
5. Innkaupareglur Fjarðabyggðar - endurskoðun 2017
Mál 1705245 Allur ferill málsins
Drögum að innkaupareglum ásamt gögnum vísað til umsagna í nefndum Fjarðabyggðar frá bæjarráði. Málið kynnt á fundi hafnarstjórnar þann 26. september 2017 og var frestað til næsta fundar.
Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ræða við fjármálastjóra varðandi 11.gr. en gerir ekki athugasemdir við reglurnar að öðru leyti.
-
6. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018 ásamt langtímaáætlun
Mál 1706013 Allur ferill málsins
Áframhald vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar 2018 ásamt langtímaáætlun fyrir árin 2019 til 2021. Fjárhagsáætlunin samþykkt og vísað til bæjarráðs.
-
7. Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018
Mál 1706041 Allur ferill málsins
Endurskoðuð gjaldskrá hafnarsjóðs Fjarðabyggðar vegna ársins 2018. Fyrir fundinum liggur greinargerð framkvæmdastjóra vegna endurskoðunarinnar.
Hafnarstjórn ræddi endurskoðun gjaldskrár og vísar henni til afgreiðslu næsta fundar.
-
8. Innviðir á Íslandi - ástand og framtíðarhorfur
Mál 1710025 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar skýrsla um ástand innviða á Íslandi sem útgefin er af Samtökum iðnaðarins. Kynnt.