Hafnarstjórn, fundur 186
24. október 2017, kl. 16:30 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 540 liður 12
Fundargerð hafnarstjórnar frá 24. október sl. lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 231 liður 5
Til máls tóku: Sævar Guðjónsson,Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 24. október s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Aðalfundarboð 2016 - Ársreikningur 2015
Mál 1710093 Allur ferill málsins
Aðalfundarboð Fiskmarkaðar Austurlands þann 26. október 2017 á Eskifirði. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vera fulltrúi hafnarsjóðs Fjarðabyggðar á fundinum og jafnframt tilkynna tillögu hafnarstjórnar um nýjan aðalmann og varamann í stjórn Fiskmarkaðarins en það eru aðalmaður verður framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna og til vara verður formaður hafnarstjórnar eins og áður.
-
2. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Janle Sanden og Kjell Gunnar skipum Green
Mál 1710070 Allur ferill málsins
Erindi frá Nesskip dags. 10. október 2917 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá höfnum Fjarðabyggðar fyrir Jarle Sanden og Kjell Gunnar, skipstjórana á Green skipunum.
Hafnarstjórn hafnar beiðninni þar sem ekki er um reglubundnar siglingar að ræða.
-
3. Allt að 21.000 tonna framleiðsla á laxi í Berufirði og Fáskrúðsfirði - beiðni um umsögn
Mál 1709077 Allur ferill málsins
Erindi frá Skipulagsstofnun dags. 28. september þar sem óskað er eftir umsögn um frummatsskýrslu fyrir 21.000 tonna eldi í Berufirði og Fáskrúðsfirði. Fyrir fundinum lá vinnuskjal sem farið var yfir og gerðar lagfæringar. Hafnarstjórn vísar skjalinu til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarráðs til umfjöllunar.