Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 536

28. september 2017, kl. 08:30 til 13:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 229 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 2. október s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Alþingiskosningar 2017

    Mál 1709130 Allur ferill málsins

    Framlögð fundargerð yfirkjörstjórnar 25. september s.l.

    Yfirkjörstjórn leggur til að kjördeildir verði 6.

    Mjóifjörður, kjördeild Sólbrekku

    Neskaupstaður, kjördeild Nesskóla

    Eskifjörður, kjördeild Tónlistarmiðstöð

    Reyðarfjörður, kjördeild Safnaðarheimili

    Fáskrúðsfjörður, Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

    Stöðvarfjörður, Stöðvarfjarðarskóli

    Kjörstaðir verði opnir milli 09:00 og 22:00 nema í Mjóafirði þar sem opið verði milli 09:00 til 14:00 eða 17:00.

    Bæjarráð samþykkir tillögu yfirkjörstjórnar um kjördeildir í Fjarðabyggð vegna Alþingiskosninga 28. október n.k. og opnunartíma þeirra.

  2. 2. Ósk um kaup á Veturhúsum

    Mál 1709185 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Péturs Karls Kristinssonar þar sem óskað er eftir kaupum á hlut Fjarðabyggðar í Veturhúsum ehf.

    Bæjarráð samþykkir að hlutur Fjarðabyggðar verði seldur og felur bæjarritara að vinna málið áfram og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  3. 3. Afnotasamningur við landeigendur Skíðasvæðisins í Oddsskarði

    Mál 1411139 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að nýjum samningi um leigu á landi undir starfsemi Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði en landeigendur Högnastaða og Sellátra hafa óskað eftir endurskoðun núverandi samninga.

    Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 14. september 2017, ásamt tillögu að afmörkun skíðasvæðisins.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir samninga og vísar þeim til staðfestingar bæjarráðs. Jafnframt samþykkir nefndin, að höfðu samráði við landeigendur, að deiliskipulag verði unnið fyrir svæðið.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við landeigendur og leggja fyrir bæjarráð að nýju til staðfestingar.

  4. 4. Arctic Circle þingin í Hörpu 13.-15. október

    Mál 1709187 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fréttatilkynning um Þing Arctic Circle þar sem verða 135 málstofur með 600 ræðumönnum og fyrirlesurum. Haldið 13. til 15. október n.k.

    Bæjarstjóra mun sækja ráðstefnu ásamt atvinnu- og þróunarstjóra.

  5. 5. Kauptilboð í Bleiksárhlíð 2-4 3H

    Mál 1709039 Allur ferill málsins

    Framlagt samþykkt kauptilboð í 5 herb. íbúð á 3ju hæð í Bleiksárhlíð 2-4 á Eskifirðir við Launafl ehf. Söluverð íbúðarinnar er 15 m.kr. sbr. samþykkt bæjarráðs frá 25.9. 2017.

    Bæjarráð samþykkir kauptilboðið að fjárhæð 15.000.000 kr. og felur bæjarstjóra að ganga frá skjölum vegna kaupanna.

  6. 6. Aðalfundur samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 6. október

    Mál 1710001 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 6. október n.k.

    Bæjarráð samþykkir að Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri fari með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  7. 7. Málefni og áherslur HSA á árinu 2017

    Mál 1703014 Allur ferill málsins

    Málefni Heilbrigðisstofunar Austurlands rædd.

  8. 8. Viðbygging við leikskólann Lyngholt

    Mál 1611029 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir að fela fræðslustjóra og sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að leggja fyrir bæjarráð útfærða valkosti í húsnæðismálum Leikskólans Lyngholts vegna fjölgunar á leikskólarýmum til að bregðast við þörf vegna fjölgunar barna á leikskólaaldri á Reyðarfirði.

  9. 9. Starfs- og fjárhagsáætlun 2018 íþrótta- og tómstundanefnd

    Mál 1706018 Allur ferill málsins

    Farið yfir áherslur í íþrótta- og tómstundamálum í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 með formanni íþrótta- og tómstundarnefndar, fræðslustjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa.

    Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2018.

  10. 10. Fjárheimilidir í fjárhagsáætlun 2018 - Félagsmálanefnd

    Mál 1709026 Allur ferill málsins

    Farið yfir áherslur í félagsþjónustu í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 með formanni félagsmálanefndar og félagsmálastjóra.

    Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2018.

  11. 11. Fjárheimilidir í fjárhagsáætlun 2018 - Barnaverndarnefnd

    Mál 1709027 Allur ferill málsins

    Farið yfir áherslur í barnaverndarmálum í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 með formanni barnaverndarnefndar og félagsmálastjóra.

    Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2018.

  12. 12. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Fræðslunefnd

    Mál 1709028 Allur ferill málsins

    Farið yfir áherslur í fræðslumálum í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 með fræðslustjóra.

    Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2018.

  13. 13. Fjárhagsheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Eigna,skipulags og umhverfisnefnd

    Mál 1709020 Allur ferill málsins

    Farið yfir áherslur í rekstri málaflokka er heyra undir eigna- skipulags- og umhverfisnefnd í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 með formanni nefndarinnar og sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs.

    Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2018.

  14. 14. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2018 ásamt langtímaáætlun

    Mál 1706013 Allur ferill málsins

    Farið yfir áherslur í málefnum hafna í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 með framkvæmdastjóra hafna.

    Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar 2018.

  15. 15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 186

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 25. september lögð fram til kynningar.

  16. 16. Hafnarstjórn - 184

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. september s.l. lögð fram til kynningar.

  17. 17. Fræðslunefnd - 46

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar frá 27. september s.l. lögð fram til kynningar.

  18. 18. Íþrótta- og tómstundanefnd - 39

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 21. september s.l. lögð fram til kynningar

  19. 19. Íþrótta- og tómstundanefnd - 40

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 21. september s.l. lögð fram til kynningar.