Félagsmálanefnd, fundur 101
14. nóvember 2017, kl. 16:15 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, formaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Borghildur Hlíf Stefánsdóttir, aðalmaður
- Ásmundur Páll Hjaltason, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varaformaður
Starfsmenn
- Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 543 liður 12
Fundargerð félagsmálanefndar frá 14.nóvember 2017 lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 233 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 101 frá 14.nóvember 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Félagsmálanefnd
Mál 1709026 Allur ferill málsins
Félagsmálanefnd samþykkir tillögur félagsmálastjóra til að fjárhagsáætlun nái saman.
-
2. Styrkbeiðni vegna Stígamóta 2018
Mál 1710137 Allur ferill málsins
Borist hefur bréf frá Stígamótum þar sem greint er frá starfsemi samtakanna á landsbyggðinni og vaxandi fjölda beiðna um þjónustu Stígamóta. Félagsmálanefnd metur mikils framlag Stígamóta til velferðarmála og hefur samþykkt að styrkja Stígamót um 300.000 kr. árið 2018.
-
3. Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2018
Mál 1710182 Allur ferill málsins
Borist hefur bréf frá Samtökum um kvennaathvarf þar sem greint er frá starfsemi samtakanna. Félagsmálanefnd metur mikils framlag Kvennaathvarfs til velferðarmála og hefur samþykkt að styrkja Samtök um kvennaathvarf um 300.000 kr. árið 2018.
-
4. Móttaka flóttamanna á árinu 2018
Mál 1710151 Allur ferill málsins
Félagsmálanefnd fjallaði um fyrirhugaða komu flóttafólks til Fjarðabyggðar og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
-
5. Ósk um niðurfellingu/styrk á fasteignagjöldum vegna veikinda
Mál 1705232 Allur ferill málsins
Vísað til bæjarráðs.
-
6. Lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila
Mál 1110040 Allur ferill málsins
Kynnt erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem varðar uppgjör á lífeyrisskuldbindingum hjúkrunarheimila sem reknar eru sem sjálfseignarstofnanir með aðkomu sveitarfélaga.
-
7. Innkaupareglur Fjarðabyggðar - endurskoðun 2017
Mál 1705245 Allur ferill málsins
Drögum að innkaupareglum ásamt gögnum vísað til umsagna í nefndum Fjarðabyggðar frá bæjarráði. Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemdir við drögin.