Bæjarráð, fundur 542
13. nóvember 2017, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 232 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 13. nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2017 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1705109 Allur ferill málsins
Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur málaflokka og framkvæmdir janúar - september 2017 ásamt tekjum og launakostnaði fyrir janúar - október 2017. Einnig lagt fram deildayfirlit yfir fyrstu 9 mánuði ársins.
-
2. Ágóðahlutagreiðsla 2017
Mál 1711034 Allur ferill málsins
Ágóðahlutagreiðsla til Fjarðabyggðar á árinu 2017 frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands er kr. 2.434.000.
Lagt fram til kynningar og vísað til fjármálastjóra.
-
3. Dragnótaveiðar innan fjarða
Mál 1709152 Allur ferill málsins
Lagt fram svar Hafrannsóknastofnunar við bréfi frá 10.október 2017 er varðar dragnótaveiðar innan fjarða. Í bréfi kemur fram að Hafransóknarstofnun telur að veiðar með dragnót hafi ekki neikvæð áhrif á lífríki fjarða.
Bæjarráð óskaði eftir mati stofnunarinnar vegna fyrirspurna íbúa á Norðfirði vegna dragnótaveiða. Þar af leiðandi sér bæjarráð sér ekki fært að fara með málið lengra að svo stöddu. Bæjarritara falið að svara erindi íbúanna.
-
4. Úthlutunarreglur íþróttastyrkja uppfærðar 2017
Mál 1702203 Allur ferill málsins
Íþrótta- og tómstundanefnd hefur unnið að breytingum á reglum um úthlutun íþróttastyrkja. Á 36. fundi íþrótta- og tómstundanefndar var íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að óska eftir umsögnum frá íþróttafélögum um drög að breytingum á reglum um íþróttastyrki. Engar umsagnir bárust. Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkti því breytingarnar á 42. fundi sínum fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs til staðfestingar.
Reglunum vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
5. Undirskriftarlisti um að breyta opnunartíma í Sundlaugar Eskifjarðar
Mál 1710102 Allur ferill málsins
Íþrótta- og tómstundanefnd hefur borist undirskriftarlisti sem legið hefur frammi í afgreiðslu Sundlaugar Eskifjarðar vegna breytinga á opnunartíma sundlaugarinnar um helgar yfir vetrartímann. Er það skoðun þeirra sem standa að undirskriftarlistanum að það sé betra að hafa opnunartímann frá kl. 10:00 eða 11:00 f.h. til kl. 16:00 eða 17:00 e.h. í stað frá kl. 13:00 til 18:00. Lagt fram minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa er tekið var saman á grundvelli umræðu í nefndinni. Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að breyta opnunartíma Sundlaugar Eskifjarðar um helgar yfir vetrartímann frá kl. 11:00 til 16:00 veturinn 2017-2018. Vísað til bæjarráðs til staðfestingar.
Bæjarráð samþykkir breytingarnar sem nefndin leggur til.
-
6. Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1611104 Allur ferill málsins
Áframhald umræðu um húsnæðisáætlun.
Vísað til áframhaldandi vinnu.
-
7. Innkaupareglur Fjarðabyggðar - endurskoðun 2017
Mál 1705245 Allur ferill málsins
Innkaupareglur hafa verið teknar til umfjöllunar í fastanefndum. Fastanefndir gerðu ekki athugasemdir við reglurnar, utan að hafnarstjórn gerði athugasemd við 11.gr. og hefur henni verið komið á framfæri við fjármálastjóra.
Vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
-
8. Viðmiðunarreglur um úthlutun kennslutímamagns til grunnskóla í Fjarðabyggð
Mál 1710126 Allur ferill málsins
Frá fræðslunefnd.
Í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2018 leggur fræðslunefnd til breytingu á úthlutunarreglum kennslutímafjölda við grunnskólana í Fjarðabyggð. Breytingin varðar tímamagn til skólanna vegna tvítyngdra nemenda, þegar fjöldi nemenda er orðinn meiri en 20 nemendur í skólanum. Í stað þess að fylgi hverjum nemenda umfram 20 einn tími mun fylgja hálfur tími.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
9. Fræðslunefnd - 48
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 48 frá 8.nóvember 2017, lögð fram til kynningar.
-
10. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 190
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 190 frá 6.nóvember 2017, lögð fram til kynningar.
-
11. Menningar- og safnanefnd - 36
Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 36 frá 8.nóvember 2017, lögð fram til kynningar.
-
12. Íþrótta- og tómstundanefnd - 42
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 42 frá 9.nóvember 2017, lögð fram til kynningar.