Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Undirskriftarlisti um að breyta opnunartíma í Sundlaugar Eskifjarðar

Mál 1710102 Fyrst á dagskrá 13. nóvember 2017, síðast 16. nóvember 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: EskifjörðurÍþróttir og tómstundir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Bæjarráð, fundur 542 liður 5

    Íþrótta- og tómstundanefnd hefur borist undirskriftarlisti sem legið hefur frammi í afgreiðslu Sundlaugar Eskifjarðar vegna breytinga á opnunartíma sundlaugarinnar um helgar yfir vetrartímann. Er það skoðun þeirra sem standa að undirskriftarlistanum að það sé betra að hafa opnunartímann frá kl. 10:00 eða 11:00 f.h. til kl. 16:00 eða 17:00 e.h. í stað frá kl. 13:00 til 18:00. Lagt fram minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa er tekið var saman á grundvelli umræðu í nefndinni. Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að breyta opnunartíma Sundlaugar Eskifjarðar um helgar yfir vetrartímann frá kl. 11:00 til 16:00 veturinn 2017-2018. Vísað til bæjarráðs til staðfestingar.

    Bæjarráð samþykkir breytingarnar sem nefndin leggur til.

  2. Bæjarstjórn, fundur 232 liður 2.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 542“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is