Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Fjárhagsáætlun 2017 - viðauki 7

Mál 1711144 Fyrst á dagskrá 27. nóvember 2017, síðast 30. nóvember 2017. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Bæjarráð, fundur 544 liður 10

    Framlagður viðauki nr. 7 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2017. Viðaukinn er vegna uppgjörs lífeyrisskuldbindinga við Brú lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga að upphæð um 548 milljónir króna.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 233 liður 10

    Framlagður viðauki nr. 7 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2017. Viðaukinn er vegna uppgjörs lífeyrisskuldbindinga við Brú lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga að upphæð um 548 milljónir króna.

    Lesa alla bókunina (172 orð til viðbótar)

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði. Fyrir liggur tillaga fyrir bæjarráði að taka 135 milljónir króna að láni hjá Lánasjóði sveitarfélaga en að öðru leyti er gert ráð fyrir að taka að láni með tveimur skuldabréf eftirstöðvar lífeyrisskuldbindingarinnar hjá Brú lífeyrissjóði þegar endanlegt uppgjör skuldbindingarinnar liggur fyrir nú í desember nk. Annars vegar um 371,3 milljónir króna til 30 ára og hins vegar um 40,2 milljónir króna til 20 ára. Bæði skuldabréfin verða verðtryggð og bera um 3,5% vexti.

    Því er lagt til í samræmi við ofangreint að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2017 og mun fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2017 breytast sem hér segir:

    Rekstur lífeyrisskuldbindinga í málaflokki 27 hækkar sem nemur kr. 135.000.000 fyrir árið 2017 og nemi í heildina kr. 316.102.410.

    Langtímakröfur Aðalsjóðs Fjarðabyggðar hækki um kr. 411.500.000.

    Lántaka ársins 2017 ársins í Aðalsjóði hækki sem nemur kr. 546.500.000 fyrir árið 2017 og nemi í heildina fyrir A hluta 939.500.000 milljónir króna og fyrir samstæðu Fjarðabyggðar kr. 1.399.500.

    Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun ársins 2017, með 9 atkvæðum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 233 liður 2.10

    Fundargerðin „Bæjarráð - 544“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is