Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Ábending frá Hafnasambandi Íslands vegna fyrirspurnar til nokkurra hafna um farþegagjöld

Mál 1711018 Fyrst á dagskrá 16. nóvember 2017, síðast 30. nóvember 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.

Í heiti málsins: Hafnir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Hafnarstjórn, fundur 187 liður 3

    Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 2.nóvember 2017 þar sem tekið er saman efni vegna fyrirspurnar SAF til nokkurra hafna um innheimtu farþegagjalda og hvað liggi að baki þeim. Í samantektinni kemur fram eftirfarandi:

    Lesa alla bókunina (270 orð til viðbótar)

    "Öll gjaldtaka hafna skv. hafnalögum er ætlað að standa undir rekstri viðkomandi hafnar þ.m.t. fjármagnskostnaði, afskriftum, kostnaði við endurnýjun og stofnkostnaði skv. langtímaáætlun hafnarinnar sbr. 1. mgr. 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Um farþegagjald er fjallað í 2. tl. 2. mgr. 17. gr. laganna þar sem segir; ?Farþegagjald og gjald fyrir bifreiðar sem ekið er um borð eða frá borði í ferju og skal gjald þetta standa straum af kostnaði við uppbyggingu á aðstöðu og búnaði fyrir farþega og bifreiðar, sem og kostnaði við rekstur og viðhald?. Í greinargerð með frumvarpi, því sem varð að hafnarlögum, segir um gjaldið:

    "Nýmæli í frumvarpinu er farþegagjald. Ljóst er að hafnarsjóðir hafa lagt í töluverðan kostnað til þess að taka á móti farþegum af skemmtiferðaskipum, ferjum og skemmtiferða- eða útsýnisbátum ýmiss konar sem þjónusta ferðamenn. Þessi kostnaður felst í umsýslu skipanna, sérbúnaði, svo sem flotbryggjum og landgöngum, svo og aðstöðu fyrir þau sem ekki nýtist í annað. Rökrétt er að heimila gjaldtöku fyrir þessa þjónustu hafna. Gjaldtökuheimildir kaflans ná til sömu rekstrarþátta og starfsheimildir hafnarinnar."

    Því er ljóst að með lögunum var m.a. ætlað að heimila gjaldtöku vegna eldri framkvæmda og aðstöðu í höfnum, en augljóst er að umferð ökutækja og farþega á landi hafna hefur í för með sér kostnað við viðhald mannvirkja á landi og sjó, þrif auk ýmis konar umsýslu og eftirlits vegna starfseminnar, sem er í raun sameiginlegur kostnaður notenda í atvinnurekstri. Eftir tilkomu hafntengdrar ferðaþjónustu hefur einnig komið til framkvæmda er tengist þeirri þjónustu sérstaklega; afmörkunar svæða, söluaðstaða og umhverfisbætur á landi sem augljóst er að verður ekki fjármagnað nema með eðlilegu gjaldi af slíkri starfsemi.

    Erindið kynnt.

  2. Bæjarstjórn, fundur 233 liður 4.3

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 187“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is