NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 191
20. nóvember 2017, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
- Kristjana Guðmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Anna Berg Samúelsdóttir, embættismaður
- Ragna Dagbjört Davíðsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 544 liður 36
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 191 frá 20.nóvember 2017, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 233 liður 3
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 191 frá 20.nóvember 2017, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Klippikort á söfnunarstöðvum
Mál 1612013 Allur ferill málsins
Verkefnastjóri umhverfismála kynnir fyrir nefndinni kosti þess að nota klippikort í sambandi við losun á úrgangi á móttökustöðvum.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna málið áfram og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
2. Dúfur í miðbæ Reyðarfjarðar
Mál 1711113 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfistjóra að ræða við hlutaðeigandi aðila vegna ónæðis af völdum dúfna í miðbæ Reyðarfjarðar.
-
3. Stefnumótun í fiskeldismálum
Mál 1703120 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að stýrihópurinn verði skipaður þremur fulltrúum frá nefndinni, tveimur frá hafnarstjórn, framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna, atvinnu- og þróunarstjóra, skipulags- og byggingarfulltrúa og umhverfisstjóra.
Tillögunni vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
-
4. Tjaldsvæði Fjarðabyggð 2017
Mál 1612066 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir drög umhverfisstjóra að samningskaupalýsingu á rekstri tjaldsvæðanna og felur umhverfisstjóra að vinna málið áfram.
-
5. 730 Sunnugerði 3 - Umsókn um stækkun lóðar ásamt endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 1711036 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi Páls Guðmundar Ásgerissonar, dagsett 5. nóvember 2017, þar sem óskað er eftir stækkun lóðar hans að Sunnugerði 3 á Reyðarfirði um 2,5 m til norðurs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við bréfritara.
-
6. 750 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting - skógrækt, Víkurgerði
Mál 1706060 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, vegna skógræktar í landi Víkurgerðis við Fáskrúðsfjörð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að breytingartillagan verði kynnt íbúum og hagsmunaðilum í samræmi við skipulagslýsingu.
-
7. 750 Álfabrekka 6 - byggingarleyfi, stækkun bílskúrs
Mál 1710004 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju byggingarleyfisumsókn Ívars Guðjóns Jóhannessonar, dagsett 1. október 2017, þar sem sótt er um leyfi til að stækka bílskúr við íbúðarhús hans að Álfabrekku 6 á Fáskrúðsfirðiðis um 6,37 m til austurs eða um 31,9 m2. Grenndarkynningu er lokið án athugasemda nágranna,
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
8. 730 Austurvegur - Umsókn um lóð
Mál 1710155 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju lóðarumsókn Ástu Ásgeirsdóttur, dagsett 25. október 2017, þar sem sótt er um lóð undir einbýlishús austan við Austurveg 70 á Reyðarfirði. Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 3. nóvember 2017, um skipulagsmál austast á Austurvegi á Reyðarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að grenndarkynna umsóknina. Grenndarkynning nái til íbúða yst á Austurvegi, sunnan Norðfjarðarvegar.
-
9. Gjaldskrá gatnagerðagjalda í Fjarðabyggð 2018
Mál 1709203 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarfulltrúa um gjaldskrá gatnagerðargjalda í Fjarðabyggð 2018.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu skipulags- og byggingarfulltrúa að undanskyldri tillögu um afslátt af gatnagerðargjöldum sem vísað er til vinnu við húsnæðisstefnu Fjaraðbyggðar. Tillögunni vísað til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
-
10. Gjaldskrá byggingarleyfis-, framkvæmdaleyfis- og þjónsutugjalda skipulags- og byggingafulltrúa 2018
Mál 1709206 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarfulltrúa um gjaldskrá byggingarleyfis-, framkvæmdaleyfis- og þjónustugjalda skipulags- og byggingarfulltrúa 2018.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu skipulags- og byggingarfulltrúa og vísar tillögunni til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
-
11. 755 Óseyri - efnistaka
Mál 1711115 Allur ferill málsins
Lögð fram efnistökuumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 15. nóvember 2017, þar sem óskað er eftir leyfi til að taka 2000 m3 af efni úr námu við Óseyri í Stöðvarfirði. Efnistaka við Óseyri er í samræmi við Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að efnistaka verði leyfð og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
12. Skóla- og íþróttasvæði,miðbær Reyðarfirði
Mál 1711106 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að haldinn verði opinn fundur um viðbyggingu við leikskólann Lyngholt á Reyðarfirði þegar vinna við hönnun er hafin.
-
13. Fjárhagsheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Eigna,skipulags og umhverfisnefnd
Mál 1709020 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir tillögu bæjarráðs að lækkun fjárhagsáætlunar, farið var yfir tillögur sviðstjóra. Nefndin felur sviðstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
-
14. Snjóflóðavarnir Urðabotna/Drangagil
Mál 1711109 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar og verksamningur varðandi vatnstýringar og frágang ofan ofanflóðavarna í Drangagili. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við verksamninginn og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
-
15. Ofanflóðavarnir á Norðfirði ? Urðarbotn og Sniðgil og Urðabotna og Bakkagil. Mat á umhverfisáhrifum. Drög að frummatsskýrslu.
Mál 1509179 Allur ferill málsins
Fundargerðir lagðar fram til kynningar
-
16. Ofanflóðavarnir í Neskaupstað og Eskifirði - bætur vegna skógræktar
Mál 1711085 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og vísað til afgreiðslu bæjarráðs
-
17. Frístundaakstur
Mál 1710015 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað um frístundaakstur.
-
18. Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 1.nóvember
Mál 1710064 Allur ferill málsins
Fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands lögð fram til kynningar
-
19. Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir
Mál 1602108 Allur ferill málsins
Fundargerðir verkfunda 17 og 18 lagðar fram til kynningar.