Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Endurmat hættumatslína vegna ofanflóða

Mál 1710175 Fyrst á dagskrá 6. nóvember 2017, síðast 18. janúar 2018. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Umhverfi og veitur

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 190 liður 10

    Varnarmannvirki vegna ofanflóða hafa verið tekin í notkun við Tröllagil á Norðfirði, við Bleiksá og Hlíðarendaá á Eskifirði og við Nýjabæjarlæk á Fáskrúðsfirði. Áætlað er að framkvæmdum vegna ofanflóðavarna við Ljósá á Eskifirði ljúki í lok þessa árs og yfirborðsfrágangi á næsta ári.

    Hættumat vegna ofanflóða þar sem framkvæmdum er lokið hefur ekki verið endurskoðað eða hættumatslínur færðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltruúa að senda inn fyrirspurn til Veðurstofunnar varðandi þau svæði sem búið er að verja og hugsanlegar byggingarlóðir.

  2. Bæjarstjórn, fundur 232 liður 3.10

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 190“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. 2018

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 194 liður 12

    Lagt fram til kynningar svar Veðurstofu Íslands, dagsett 11. desember 2017, vegna fyrirspurnar Fjarðabyggðar um endurskoðun hættumats vegna ofanflóða í Fjarðabyggð þar sem varnarmannvirki eru risin. Í svari Veðurstofu kemur fram að vænta má endurmats á árinu 2018.

  4. Bæjarstjórn, fundur 236 liður 2.12

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 194“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is