Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Þjónusta talmeinafræðings í heimabyggð

Mál 1712075 Fyrst á dagskrá 17. janúar 2018, síðast 28. febrúar 2018. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Fræðslunefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Fræðslunefnd, fundur 50 liður 1

    Fyrir liggur bréf frá foreldrum barna í Neskaupstað. Í bréfinu er spurt hvort nokkuð sé því til fyrirstöðu að sveitarfélagið Fjarðabyggð geri samning við talmeinafræðing sem gæti sinnt meðferð á leikskólanum líkt og á Fljótsdalshéraði. Einnig liggur fyrir samkomulag milli velferðarráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skiptingu ábyrgðar vegna talmeinaþjónustu við börn með framburðarfrávik, málþroskafrávik og stam og minnisblað fræðslustjóra. Í minnisblaðinu kemur fram að ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að gengið yrði til samninga við sjálfstætt starfandi talmeinafræðing bæði varðandi þjónustu við þau börn sem falla undir ábyrgðarsvið sveitarfélagsins og þau sem falla undir þjónustu Sjúkratrygginga Íslands. Jafnframt kemur fram að talmeinafræðingar sem starfa hjá Tröppu hafa veitt talmeinaþjónustu í gegnum fjarfundabúnað í skólum Fjarðabyggðar með góðum árangri. Með samningi við sjálfstætt starfandi talmeinafræðing búsettan hér eystra væri þjónustan styrkt enn frekar. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að ganga til samninga við viðkomandi talmeinafræðing.

  2. Bæjarráð, fundur 549 liður 12.1

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 50“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Fræðslunefnd, fundur 52 liður 3

    Fyrir liggja drög að samningi við sjálfstætt starfandi talmeinafræðing um talmeinaþjónustu. Fræðslunefnd samþykkir drögin og felur fræðslustjóra að vinna málið áfram.